miðvikudagur, maí 02, 2007

Kvef, pirringur og próflestur

Hér sit ég við tölvuna og er að reyna að læra fyrir próf en get ekki sagt að ég komist yfir mikið í einu. Ásbjörn Freyr er kvefaður og er svona rétt aðeins pirraður á því. Hann liggur í rúminu sínu núna pakksaddur og með þurra bleyju þannig að ég er að vonast til að hann sofni von bráðar. Ég er farin að fá nettan hnút í magann - búin að hafa góðan tíma til að læra fyrir þetta próf en hef ekki komist yfir nema brot af því sem ég á að læra. Ég hef þó annað tækifæri í haust ef þetta klikkar allt en að sjálfsögðu reyni ég að gera mitt besta.

Annars er fínt að frétta, ég skellti mér í leikfimi um daginn sem er alveg meiriháttar skemmtilegt - fór í Hreyfiland þar sem börnin eru með manni í tímanum. Var búin að vera á leiðinni í leikfimi síðan í mars en nennið hefur ekki alveg verið til staðar. Eyþór er búinn að vera að tónleikast aðeins, fara á Hellu og Sauðárkrók og svo í Smáralindinni í gær 1. maí þegar hópreið Sniglanna kom þangað. Skilst að það hafi verið a.m.k. 670 hjól sem lögðu af stað frá Perlunni - ekkert smá hópur það. Perla er búin að vera að syngja með kórnum í leikritinu Ást í Borgarleikhúsinu í nokkur skipti og í tilefni af því þá er þeim boðið að sjá Gretti á laugardaginn nk. - ekki leiðinlegt það. Perla hefur undanfarna morgna vaknað snemma og farið með Skugga út á skólalóð til að leyfa honum að hlaupa - dugnaðar stelpa. Ólöf er bara búin að vera dugleg að leika sér úti og inni :) og hjálpa mér með Ása - hún gaf honum t.d. graut að borða í gær og það gekk svona ljómandi vel hjá henni.

Ég fer síðan í próf á þriðjudaginn og ég krossa bara fingur og vona að þetta gangi upp, er eiginlega ekki að nenna að lesa fyrir 2 fög í sumar - þarf að taka eitt próf í haust sem er eiginlega bara alveg nóg að mínu mati. Þannig best að hætta þessu babli og fara að læra ;-)

Engin ummæli: