sunnudagur, febrúar 06, 2005

Flutt í Holtagerði

Við erum flutt og okkur líður rosalega vel í nýju íbúðinni. Við fluttum laugardaginn 29. janúar og fengum góða hjálp þannig að þetta gekk rosalega vel. Við fórum svo á sunnudeginum og þrifum allt hátt og lágt einnig með góðri hjálp. Takk allir fyrir hjálpina. Við erum enn að koma okkur fyrir í Holtagerðinu og það á eftir að taka smá tíma enda nær maður ekki að gera mikið nema aðeins á kvöldin og svo um helgar vegna mikilla anna en það kemur á endanum, ég hef allaveganna ekki miklar áhyggjur af því. Hlakka þó rosalega til þegar hver hlutur er kominn á sinn stað :)

Stelpurnar byrjuðu í nýjum skóla 1. febrúar og mér finnst það hafa gengið alveg ótrúlega vel. Ólöf er búin að vera að leika við bekkjarsystur sínar alla daga síðan en Perla er aðeins rólegri í þessu en gengur samt ágætlega. Eflaust er þetta erfiðara þegar maður er orðinn 10 ára og á sínar bestu vinkonur í gamla skólanum en ég hef ekki svo miklar áhyggjur af henni, held hún eigi eftir að spjara sig ágætlega.

Frábært að Ágúst og Svanhildur skulu vera komin með bloggsíðu. Það verður gaman að fylgjast með ykkur.

Fjölskyldumynd á brúðkaupsdaginn Posted by Hello