Gleðileg jól.
Með von um að þú/þið eigir/eigið góða og hamingjusama daga um jólin.
Jólakveðja,
Inga María, Eyþór, Perla Ósk og Ólöf María
föstudagur, desember 24, 2004
föstudagur, desember 10, 2004
Myndir
Það eru komnar inn nýjar myndir á síðuna og ég er einnig búin að bæta við myndum síðan í sumar :)
Jæja nú er ég hálfnuð með prófin, 2 búin og 2 eftir. Mér gekk ágætlega í prófinu í gær en hörmulega í fyrsta prófinu. Nú er ég að reyna að lesa fyrir þjóðhagfræðiprófið sem er næsta próf. Mér finnst það alveg merkilegt hvað maður verður syfjaður þegar maður er að lesa fyrir próf en ekki þegar maður er að lesa einhverja aðra bók, skrítið. Ég er t.d. alveg að drepast úr syfju núna og klukkan er bara 4, ótrúlegt. Ég ætla að reyna að vera dugleg í svona hálftíma í viðbót en þá byrjar föstudagsskutlið, keyra og sækja Ólöfu og Perlu í fimleika en annars er Perla orðin svo duglega að labba þetta sjálf, ég sæki hana þó oftast því hún er ekki búin fyrr en að verða 8 og þá förum við yfirleitt til mömmu að horfa á Idol stjörnuleit, geggjað stuð :)
þriðjudagur, desember 07, 2004
Afmæliskveðja
Nú er Perla Ósk orðin 10 ára. Það er alveg ótrúlegt hvað tíminn hefur flogið - 10 ár, getur það virkilega verið?
Innilega til hamingju með 10 ára afmælið Perla Ósk.
Knús og kossar frá mömmu, pabba og Ólöfu Maríu.
Innilega til hamingju með 10 ára afmælið Perla Ósk.
Knús og kossar frá mömmu, pabba og Ólöfu Maríu.
laugardagur, desember 04, 2004
Nú er próftímabilið að hefjast, fyrsta prófið á mánudaginn. Ég veit ekki hvernig mér á eftir að ganga í því enda erfiðasta prófið að mínu mati og mér finnst ég ekki kunna nóg í þessu til að ná prófinu en ég má þó ekki gefast upp FYRIR prófið, ég reyni og geri mitt besta ef það er ekki nóg þá verður bara að hafa það og þá verður bara tilraun tvö næsta haust.
Ég hlakka rosalega mikið til að komast í jólafrí og ætla líka að njóta þess þó svo að við reynum að nota tímann til að pakka dótinu okkar fyrir flutningana. Ég tek síðasta prófið 18. des. jibbí. Verð að halda áfram að læra eða eitthvað..... Bæ í bili.
Ég hlakka rosalega mikið til að komast í jólafrí og ætla líka að njóta þess þó svo að við reynum að nota tímann til að pakka dótinu okkar fyrir flutningana. Ég tek síðasta prófið 18. des. jibbí. Verð að halda áfram að læra eða eitthvað..... Bæ í bili.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)



