Hvítasunnuhelgin liðin og við búin að fara í okkar fyrstu útilegu á árinu. Við fengum lánað fellihýsi sem er algjör lúxus, tala nú ekki um að vera með hita yfir nóttina eða þurfa ekki að vakna með rassinn klesstan við jörðina vegna þess að loftið er farið úr vindsænginni - yndislegt. Við fórum með Óskabörnunum í Þykkvabæ og fengum bara fínt veður a.m.k. yfir daginn en það var heldur kalt yfir nóttina. Ási var hinn þægasti og sofnaði eins og heima hjá sér um kl. 9 og svaf til að verða 7. Hann hafði rosalega gaman af því að sitja í grasinu og slíta það upp. Hann sat nú reyndar ekkert lengi kyrr þar sem hann er farinn að skríða og finnst mjög gaman að kanna heiminn þessa dagana.
Ég held að það sé málið að fá sér fellihýsi þegar við ákveðum að fara í að túrast um Ísland sem verður kannski eftir svona 2 ár, allaveganna verður það ekki þetta sumarið þar sem við ætlum að taka garðinn í gegn og gera hann fínan.
Eins og ég nefndi hér áðan þá er litli kúturinn farinn að skríða og í gær þá komst hann í matardallinn hann Skugga og vatnsdallinn og fannst ekkert lítið gaman hihi. Svo er hann farinn að kanna íbúðina og skríður út um allt - ferlega gaman að fylgjast með honum núna, eina stundina er hann hjá manni svo þá næstu er hann kominn í hinn endan á íbúðinni.
Ég hef enn ekkert fengið að vita úr prófinu þannig ég bara bíð ennþá. Ég er pínu nervus er engan vegin örugg um að ná þessu en vona samt það besta. Ég er alltaf að reyna að byrja undirbúningnum fyrir ritgerðina en gengur eitthvað ósköp hægt - ætlaði að vera rosa duglega meðan stelpurnar væri enn í skólanum en það hefur ekki alveg gengið eftir. Þær klára í næstu viku og eru þá komnar í sumarfrí. Perla er núna í prófum sem klárast á morgun og Ólöf var alla síðustu viku í prófum. Skólaslit hjá þeim eru svo á fimmtudaginn.
þriðjudagur, maí 29, 2007
sunnudagur, maí 06, 2007
Gott veður
Sagði ég ekki!! Gott veður og ég verð að hanga inni og læra, týpiskt. Ég vona að þeir sem þurfa ekki að hanga yfir bókunum fari nú og njóti sólarinnar, ég myndi a.m.k. gera það ef ég mætti ;)
Annars er fínt að frétta, ég er búin í prófinu á þriðjudaginn og þá get ég farið að gera allt það sem mig langar að gera núna. Ási er orðinn hress og hættur með nefrennsli og pirring. Hann fékk banana áðan og það gekk mun betur heldur en í fyrsta skiptið en þá hryllti hann sig alveg heil ósköp, fannst þetta bara vont en núna var þetta allt í lagi :D
Hlakka til að fylgjast með Eurovision á fimmtudaginn, vona bara að við komumst áfram, það er ólíkt skemmtilegra að horfa á aðalkeppnina þegar við erum með.
.... en nú verð ég að hætta.
ps. þið megið alveg endilega kvitta í gestabókina eða kommenta, mig langar svo að vita hvort einhver er að lesa bloggið mitt ;)
Bæ í bili
kv. Inga María

fimmtudagur, maí 03, 2007
Allt getur gerst!!!
Undur og stórmerkilegir hlutir gerast enn, hihi - Eyþór vaknaði kl. 6 í morgun og skellti sér í leikfimi - þrefallt húrra fyrir honum ;-) Hann þurfti bara smá hvatningu til að byrja á þessu - allir verslunarstjórarnir í Europris ætla nú að fara að æfa saman 4 sinnum í viku sem er bara gott mál.
Ási litli er enn kvefaður og var mjög pirraður í gær, virðist samt vera pínu hressilegri það sem komið er af deginum í dag, vona bara að svo verði.
Ási litli er enn kvefaður og var mjög pirraður í gær, virðist samt vera pínu hressilegri það sem komið er af deginum í dag, vona bara að svo verði.
miðvikudagur, maí 02, 2007
Kvef, pirringur og próflestur
Hér sit ég við tölvuna og er að reyna að læra fyrir próf en get ekki sagt að ég komist yfir mikið í einu. Ásbjörn Freyr er kvefaður og er svona rétt aðeins pirraður á því. Hann liggur í rúminu sínu núna pakksaddur og með þurra bleyju þannig að ég er að vonast til að hann sofni von bráðar. Ég er farin að fá nettan hnút í magann - búin að hafa góðan tíma til að læra fyrir þetta próf en hef ekki komist yfir nema brot af því sem ég á að læra. Ég hef þó annað tækifæri í haust ef þetta klikkar allt en að sjálfsögðu reyni ég að gera mitt besta.
Annars er fínt að frétta, ég skellti mér í leikfimi um daginn sem er alveg meiriháttar skemmtilegt - fór í Hreyfiland þar sem börnin eru með manni í tímanum. Var búin að vera á leiðinni í leikfimi síðan í mars en nennið hefur ekki alveg verið til staðar. Eyþór er búinn að vera að tónleikast aðeins, fara á Hellu og Sauðárkrók og svo í Smáralindinni í gær 1. maí þegar hópreið Sniglanna kom þangað. Skilst að það hafi verið a.m.k. 670 hjól sem lögðu af stað frá Perlunni - ekkert smá hópur það. Perla er búin að vera að syngja með kórnum í leikritinu Ást í Borgarleikhúsinu í nokkur skipti og í tilefni af því þá er þeim boðið að sjá Gretti á laugardaginn nk. - ekki leiðinlegt það. Perla hefur undanfarna morgna vaknað snemma og farið með Skugga út á skólalóð til að leyfa honum að hlaupa - dugnaðar stelpa. Ólöf er bara búin að vera dugleg að leika sér úti og inni :) og hjálpa mér með Ása - hún gaf honum t.d. graut að borða í gær og það gekk svona ljómandi vel hjá henni.
Ég fer síðan í próf á þriðjudaginn og ég krossa bara fingur og vona að þetta gangi upp, er eiginlega ekki að nenna að lesa fyrir 2 fög í sumar - þarf að taka eitt próf í haust sem er eiginlega bara alveg nóg að mínu mati. Þannig best að hætta þessu babli og fara að læra ;-)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)