sunnudagur, ágúst 26, 2007

Ekki með alveg réttar tölur

Ekki fékk ég lottóvinninginn núna. Var ekki með nema 2 réttar, frekar fúlt. Hefði sko alveg verið til í fá þann stóra núna, kannski bara næst.

Ég er búin í reikningshaldsprófinu og fannst ganga bara ágætlega :D nú er allt á fullu í ritgerðarvinnu og það á að vera búið 13. september þannig þangað til ....

laugardagur, ágúst 11, 2007

10 mánaða

Jeminn...
Litli drengurinn minn er 10 mánaða í dag :)
Til hamingju með daginn Ási minn.

Kv. mamma

fimmtudagur, ágúst 09, 2007

Ekki alveg dauð

Ég er hér enn og á lífi. Ég er í algjörri blogglægð núna.
Nú er ég á fullu að læra fyrir SÍÐASTA prófið mitt sem er 21. ágúst og vinna í BS ritgerðinni minni sem á að skilast 13. september. Ég er því frjáls eftir 13. september og get farið að njóta lífsins :)
Skrifa meira seinna og set inn fleiri myndir við tækifæri.