fimmtudagur, október 19, 2006

Lítill prins er fæddur

Jæja, langt er síðan heyrst hefur frá okkur en margt hefur gerst síðan þá. Litill prins er fæddur og var hann frekar mikið að flýta sér. Hann kom 11 dögum fyrir setta dagsetningu, fæddist semsagt þann 11. október 2006. Við rétt náðum að komast inn á deildina áður en sá litli birtist, það tók um 9 mínútur frá því við komum þar til drengurinn var fæddur, geri aðrir betur ;) Ég er mjög fegin hvað þetta tók fljótt af og bara búið 1, 2 og 3. Hann var 13,5 mörk og 50 cm.



Hann er semsagt orðin 8 daga gamall og er BARA yndislegur. Hann er alveg ótrúlega vær og rólegur, lætur aðeins heyra í sér þegar hann er svangur og svo þegar verið er að skipta á honum. Hann er ekkert alveg sáttur við að láta leggja sig niður á skiptiborðið en þetta er allt að koma hjá honum. Stelpurnar eru rosalega ánægðar með litla bróður og eru duglegar að hjálpa til. Það er semsagt mikil sæla á þessu heimili. Látum heyra frá okkur fljótlega aftur.

Var að setja inn myndir í albúmið af litla prinsinum.