fimmtudagur, júlí 20, 2006

Júlí

Af okkur er allt fínt að frétta, ekki laust við að maður sé orðin fúll yfir veðrinum hér á Frónni...rigning, rigning, rigning... hva er rigning, ég bara trúi þessu varla. En í dag er sól og steikjandi hiti. Ég var að reyna að liggja í sólbaði en Vá ég er orðin svo óvön þessum hita að það er varla að ég tolli úti og skrapp því aðeins inn til að fikta í tölvunni, aldrei þessu vant enda hef ég mjög lítið verið í tölvunni eins og sést kannski á bloggárangri. Það hefur bara ekki mikið verið að gerast hér hjá okkur. Við vorum í sumarfríi allan júní og fórum í eina útilegu, eina veiðiferð og viku í sumarbústað sem var bara mjög gaman.

Litla bumbulingnum líður vel - spriklar að minnsta kosti alveg nóg fyrir mömmuna ;) en nú styttist í hann komi í heiminn - hans er vænst 22. október.

Ég lofa nú ekki miklu bloggi hér hjá okkur, við erum vægast sagt mjög ódugleg í þessu en ekki gefast samt upp á okkur, það getur alltaf slæðst inn hjá okkur ein og ein lína. Nóg í bili, ég ætla að drífa mig út í góða veðrið, loksins þegar það kom.

Myndbönd

Það tókst hjá mér að setja inn myndbönd af hvolpunum. Ætlaði að vera löngu búin að pæla í þessu en það hafðist ekki fyrr en núna. Hvolparnir eru náttúrulega orðnir mun stærri og komnir með sína fjölskyldu en betra seint en aldrei.