laugardagur, september 17, 2005

Arrgh

Stundum finnst mér tæknin ekki skemmtileg. Ég var búin að skrifa einhverja romsu af sjálfsvorkun um mig því ég lá í bælinu í gær og hinn að drepast í höfðinu og með ógleði en þegar ég ætla að kíkja á bloggið til að sjá hvort það hafi ekki skilað sér....Nei bara fyrirsögnin þannig ég eyddi henni bara. Óþolandi. Ég hef ekki tíma til að bulla mikið meira því ég þarf að fara að taka mig til, er nefnilega að fara í brúðkaup kl. 18 hjá Einari og Ingu.


Innilega til hamingju með afmælið í gær Óli. Sá það að á síðunni hans Eyfa.

fimmtudagur, september 15, 2005

Hér erum við :)

HÆ. Við erum enn á lífi. Veit ekki alveg hvað varð um júlí og ágúst bloggið !!! en hér erum við aftur. Ég setti inn nokkrar myndir fyrir Eyþór á síðuna okkar frá Landmannalaugaferðinni um síðustu mánaðamót. Ég hinsvegar kann ekki að setja inn videoclips á síðuna ef einhver kann það þá endilega deila þeim upplýsingum með mér.

Sumarið hjá okkur var rosaleg fínt og toppurinn var þegar ég og Eyþór skelltum okkur til Þýskalands á U2 tónleika ;) ekki slæmt það. Við fengum að gista hjá Eyfa bróður hans og Kristinu, takk fyrir okkur. Einnig fórum við til Danmerkur og hittum Ágúst og Svanhildi og börn, pabba hans Eyþór og fullt af frændfólki hans sem einnig var að fara á U2 tónleika en bara í Danmörku. Við gistum hjá Ágústi og frú í tvær nætur, takk fyrir okkur svo splæstum svo á okkur hótelherbergi síðustu nóttina. Þessi ferð var alveg meiriháttar og þó þetta væri bara vika þá gerðum við svo margt að það var eins og þetta hefðu verið tvær vikur.

Til hamingju með afmæli í dag Ásbjörn :) og takk fyrir síðast.

Ég ætla fljótlega að fara að vinna í því að setja inn myndir frá ferðinni og nýjar myndir af Skugga. Skuggi er búinn að stækka rosalega mikið og hann er rosalega góður. Hann er búinn að vera í hlýðniskóla og taka verklegt próf, svo fer ég í skriflegt próf á mánudaginn og þá fáum við að vita hvernig honum gekk í verklega prófinu. Maður fær svona einkunnaspjald eins og í alvöru skóla :)

Nóg er að gera hjá mér í skólanum enda er ég í 6 fögum eða 18 einingum þannig ég verða að reyna að slóra ekki mjög mikið en smá slór er nú í lagi til að blogga eitthvað aðeins, ekki satt.
bæ í bili og við reynum að vera duglegri að skrifa. Þar að láta Eyþór gera meira af því og kannski láta stelpurnar pikka eina og eina línu frá sér einnig.