Mál til komið að maður láti heyra í sér. Það er eitthvað svo mikið að gera hjá okkur að við höfum bara gleymt að skrifa í dagbókina okkar. Eyþór er nú kominn í 2ja vikna sumarfrí og við erum að fara á morgun í veiðiferð með vinum hans og mökum. Við konurnar ætlum nú bara að hafa það huggulegt og láta karlmennina um að veiða. Þetta verður vonandi ágætis húsmæðraorlof :) Stelpurnar fóru áðan í sveitina til ömmu sinnar ásamt Dagbjarti, Álfheiði og Ágústi. Ágúst var ekkert smá duglegur hjá okkur í gær og setti saman allar skápana í nýju eldhúsinnréttingunni. Eyþór er búinn að vera að sparsla og pússa og gera allt rykugt hérna heim :( ég er ekkert rosalega ánægð með það en ég verð víst að þola þetta þar til framkvæmdir og slíkt er yfirstaðið. Planir er að setja upp nýju eldhúsinnréttinguna okkar í júní meðan Ágúst er hér á landinu og ég hlakka svo til ég er komin með svo mikið leið á þessar innréttingu sem er núna - mér finnst eldhúsdótið mitt ekki komast fyrir.
Mér gengur ágætlega í vinnunni minni en maður er nú hálfdasaður að vera úti allan daginn en það er samt mjög fínt.
laugardagur, júní 11, 2005
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)
