fimmtudagur, apríl 28, 2005
Sumarvinna
Mín var að fá sumarvinnu í dag :) Ég ætla að vinna sem garðstjóri í skólagörðum Kópavogs í sumar. Fínt að fá að vera að vinna úti eitt sumar, ég hef alltaf verið að vinna inni á sumrin. Ég held að þetta sumar eigi eftir að vera rosalega skemmtilegt :) Mikið rosalega hlakka ég til. Stelpurnar skella sér bara í skólagarðana í sumar þannig við getum verið saman í allt sumar - gaman gaman.
þriðjudagur, apríl 26, 2005
Þá byrjar ballið
Þá er komið að því - fyrsta prófið hjá mér er á morgun frá kl. 9-13. Sendið mér nú jákvæða strauma í fyrramálið - takk elskurnar.
fimmtudagur, apríl 21, 2005
laugardagur, apríl 16, 2005
Í gær var síðasti kennsludagurinn í skólanum hjá mér þannig ég er komin í upplestrarfrí. Í tilefni þess á að fá sér aðeins í glas í kvöld. Okkur er boðið í matarboð hjá Lýð og Hjördísi í kvöld og þar verða allir veiðifélagar Eyþórs ásamt mökum. Ég hlakka mikið til enda hef ég ekki hitt mannskapinn í mjög langan tíma. Mikið stuð og mikið gaman í kvöld :)
Það helsta sem stendur upp úr í vikunni er að við fengum afsalið af Holtagerði og það er búið að koma nýja baðkarinu fyrir og tengja þannig að nú verður hægt að fara að þrífa sig, kominn tími til enda lekur af okkur skíturinn....... nei djók, við erum búin að vera dugleg að skella okkur í sund þannig þetta er ekki alveg svo slæmt.
Á eftir er Perla að keppa í innanfélagsmóti í Gerplu og ætlum ég og Ólöf að fara á eftir að fylgjast með henni. Eyþór er víst að vinna í allan dag þannig hann missir af því.

föstudagur, apríl 01, 2005
Júróvísion
Eruð þið búin að heyra framlag okkar í júróvisíon keppnina. .
Það er ekki laust við það að maður komist í smá júróvisíon fíling.
Það er ekki laust við það að maður komist í smá júróvisíon fíling.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)