Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli í dag
Hann á afmæli hann Eyþór
Hann á afmæli í dag
Veiiiiiii
Afmæliskveðja frá fjölskyldunni
mánudagur, október 31, 2005
laugardagur, október 29, 2005
Jahú
Hæ!
Ég er búin að vera rosa dugleg og kláraði skilaverkefni í upplýsingatækni í dag en hinsvegar hefði ég alveg getað verið búin með það fyrir löngu en ég er bara eins og ég er, geri allt rétt áður en á að skila. Ég á semsagt að skila því á morgun. Ég er búin að sitja yfir tölvunni í nánast þrjá daga og ég held að ég verði að suða um axlanudd ;-) ég er gjörsamlega að drepast í öxlunum og niður í bak. Hef nú ekki mikið að segja en stelpurnar eru mjög óhressar með hvað foreldrarnir eru önnum kafnir :( þess dagana og ekki er það nú gott, verðum eitthvað að reyna að leysa úr því máli.
Jú ein stór frétt!!! Það snjóaði í dag og það var hrikalegt veður í dag. Ég labbaði með Skugga út í bókabúð í Hamraborg og ég helt ég yrði úti þegar ég var að labba þangað en Skugga fannst þetta rosalega gaman. Hann var rosalega hissa í morgun þegar hann kom út og allt hvítt, hann þefaði út um allt, lá við að hann gleymdi að pissa!!! svo mikill var ákafinn að ÞEFA af snjónum :)
Heyrumst síðar, bæjó.

miðvikudagur, október 19, 2005
Boemerang
Þið verðið að kíkja á þetta, þetta er bæði það fyndnasta sem ég hef séð í langan tíma og vandræðalegasta!
Þetta er myndbrot úr "hvar eru þeir núna" þætti, svona belgískur Sirrý/Oprah þáttur. Þáttastjórnandinn er að taka viðtal við mann sem hefur verið lagður í einelti frá því hann var lítill og flestir í salnum hafa við sama vandamál að stríða. Þáttastjórnandinn var rekinn eftir þáttinn því hann þótti ekki taka málefnið mjög alvarlega!!!
Það er ekki hægt annað en að hlæja :) ég veinaði úr hlátri þegar ég horfði á þetta.

fimmtudagur, október 13, 2005
Klár hundur?
Í gær þá setti ég Skugga út í band sem er svosem ekki frásögu færandi nema það að hann eins og oft áður reynir að opna hurðina. Ég hafði hinsvegar læst henni þannig hann komst ekki inn. Hinsvegar smátíma eftir tilraunirnar til að opna útihurðina þá var dinglað. Ég fer til dyra og enginn annar en Skuggi stendur fyrir utan!!!! Er hann orðin svona klár að geta dinglað þegar hurðin er læst eða ætli einhver hafi legið í hláturskasti bak runna yfir svipnum á mér, hihihi Ég var mjög hissa og gat ekki annað sagt en "varst þú að dingla Skuggi minn" "Komdu þá inn vinurinn"
föstudagur, október 07, 2005
Stoltir hundaeigendur í Holtagerði
Við vorum að fá einkunnir frá hundanámskeiðinu. Það þarf nefnilega að taka próf í hundaskólanum :) ekki það að það sé neitt lítið að gera hjá mér.
Skuggi stóð sig með sóma hann fékk 8,5 í verklega hlutanum og námsmaðurinn mikli, þ.e. ég fékk 10 í skriflega prófinu. Við náðum semsagt með glæsibrag öllum prófunum í hundanámskeiðinu :O) Fjölskyldan er alveg í skýjunum yfir þessum árangri, :)o

þriðjudagur, október 04, 2005
Klukk
Ég var klukkuð af Auði og átti semsagt að skrifa fimm staðreyndir um sjálfa mig.
Here it comes ......
1. Ég fór á tvenna tónleika í sumar, U2 og Duran Duran og er rosalega ánægð með að hafa drifið mig :)
2. Ég er algjör bruðlari, er algjör snillingur að eyða í ekki neitt!
3. Ég hlakka alltaf til húsmæðraorlofsins með saumó því ég elska að borða, drekka, slappa af í góðra vina hópi :)
4. Ég fékk hestadellu þegar ég var smápæja og hef hana ennþá. Ég á þó ekki hest en ætla að bæta úr því eftir nokkur ár því þá er stefnt á að kaupa hest :)
5. Ég er með algjöra kóngulóafóbíu, finnst þær ógeðslegar.
... en nú má ég klukka einhverja bloggara og ætla að klukka Eyfa og Viktoríu.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)