laugardagur, október 29, 2005

Jahú

Hæ!
Ég er búin að vera rosa dugleg og kláraði skilaverkefni í upplýsingatækni í dag en hinsvegar hefði ég alveg getað verið búin með það fyrir löngu en ég er bara eins og ég er, geri allt rétt áður en á að skila. Ég á semsagt að skila því á morgun. Ég er búin að sitja yfir tölvunni í nánast þrjá daga og ég held að ég verði að suða um axlanudd ;-) ég er gjörsamlega að drepast í öxlunum og niður í bak. Hef nú ekki mikið að segja en stelpurnar eru mjög óhressar með hvað foreldrarnir eru önnum kafnir :( þess dagana og ekki er það nú gott, verðum eitthvað að reyna að leysa úr því máli.
Jú ein stór frétt!!! Það snjóaði í dag og það var hrikalegt veður í dag. Ég labbaði með Skugga út í bókabúð í Hamraborg og ég helt ég yrði úti þegar ég var að labba þangað en Skugga fannst þetta rosalega gaman. Hann var rosalega hissa í morgun þegar hann kom út og allt hvítt, hann þefaði út um allt, lá við að hann gleymdi að pissa!!! svo mikill var ákafinn að ÞEFA af snjónum :)
Heyrumst síðar, bæjó.

Engin ummæli: