Hann á afmæli í dag
hann á afmæli í dag
hann á afmæli hann Eyþór
hann á afmæli í dag
yehhh
Til hamingju með daginn Eyþór minn.
Kveðja frá fjölskyldunni : )
sunnudagur, október 31, 2004
þriðjudagur, október 26, 2004
Nú er sko aldeilis törn hjá minni, endalaus verkefnaskil og próf. Maður verður hálf ringlaður þegar það er svona mikið að gera hjá manni, maður fer að hugsa um allt milli himins og jarðar annað en það sem maður á að vera að gera. Ég t.d. setti inn nokkrar myndir til viðbótar en á reyndar eftir að bæta inn fleiri, geri það síðar - má ekki festast á netinu, nóg eftir að lesa, er að fara í próf á morgun.
Endilega skrifið í gestabókina, gaman að vita hverjir eru að fylgjast með manni :-)
Endilega skrifið í gestabókina, gaman að vita hverjir eru að fylgjast með manni :-)
mánudagur, október 18, 2004
Brrrrrrr
Jæja það hlaut að koma að því, það snjóaði í nótt. Ég var nú ekki alveg tilbúin fyrir snjó og kuldabola brrrrr, það er hrikalega kalt úti enda -3° og mikill vindur. Hefði verið til í að kúra áfram í morgun en ég varð víst að drífa mig í tölfræðitíma kl. 8.15 (spennandi).
Gaman, gaman, nú er heimilistölvan okkar komin í lag. Hún neitaði að hleypa okkur inn í stýrikerfið en því var reddað og öllum gögnunum líka :) Tölvan var troðfull af allskonar vírusum og drasli enda var hún orðin frekar leiðinleg við okkur.
Ég held svei mér þá að dætur okkar verði algjörlega tannlausar ef svona heldur áfram, Perla var að missa aðra tönn á laugardaginn!
Gaman, gaman, nú er heimilistölvan okkar komin í lag. Hún neitaði að hleypa okkur inn í stýrikerfið en því var reddað og öllum gögnunum líka :) Tölvan var troðfull af allskonar vírusum og drasli enda var hún orðin frekar leiðinleg við okkur.
Ég held svei mér þá að dætur okkar verði algjörlega tannlausar ef svona heldur áfram, Perla var að missa aðra tönn á laugardaginn!
laugardagur, október 16, 2004
föstudagur, október 15, 2004
Tennur
Í dag gerðist svolítið merkilegt, báðar stelpurnar misstu tönn, fyrst Ólöf og svo tæplega þremur tímum síðar Perla. Þær eru ekkert smá ánægðar með sig. Ólöf er nánast tannlaus, það vantar í hana þrjár tennur, báðar í efri góm og aðra í neðri góm. Við smellum mynd af þeim fljótlega og setjum á netið til gamans.
fimmtudagur, október 14, 2004
Danmerkurferðin í ágúst - september 2004
Sætar systur í bambagarðinum í Aarhus í ágúst sl.
Við skelltum okkur til Danmerkur í tvær vikur sem var alveg meiriháttar gaman. Það var ótrúlegt hvað við höfðum gott af þeirri ferð, hittum fullt af fólki og gátum einnig slakað rosalega vel á. Við vorum fyrst í Kaupmannahöfn hjá Ágústi bróður hans Eyþórs. Það var rosalega gaman að hitta alla þar. Við tókum okkur einn dag í Tívolínu og skemmtum okkur rosalega vel þar, veit ekki hvort börn eða fullorðnir skemmtu sér betur c") Pabbi hans Eyþórs kom frá Svíþjóð sem var stór plús því það var eitthvað sem við vissum ekkert um. Við fórum svo yfir til Jótlands m.a. svo Eyþór gæti farið á mótorhjólamót - Morsten :) þá skelltum við dömurnar okkur hinsvegar í heimsókn til Elísabetar, Vigfúsar, Ágústu Eir og Heimis Þórs sem búa í Hobro, það var rosalega gaman. Gistum hjá Nonna og Áslaugu í rúma viku, okkur leið alveg rosalega vel þar og þökkum við æðislega fyrir okkur.
Fyrsti blogg dagurinn c")
Halló nú erum við búin að stofna bloggsíðu og við ætlum að reyna að vera dugleg að láta vita af okkur, reyna að setja inn myndir og hafa gaman af.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)

