mánudagur, október 18, 2004

Brrrrrrr

Jæja það hlaut að koma að því, það snjóaði í nótt. Ég var nú ekki alveg tilbúin fyrir snjó og kuldabola brrrrr, það er hrikalega kalt úti enda -3° og mikill vindur. Hefði verið til í að kúra áfram í morgun en ég varð víst að drífa mig í tölfræðitíma kl. 8.15 (spennandi).
Gaman, gaman, nú er heimilistölvan okkar komin í lag. Hún neitaði að hleypa okkur inn í stýrikerfið en því var reddað og öllum gögnunum líka :) Tölvan var troðfull af allskonar vírusum og drasli enda var hún orðin frekar leiðinleg við okkur.
Ég held svei mér þá að dætur okkar verði algjörlega tannlausar ef svona heldur áfram, Perla var að missa aðra tönn á laugardaginn!

Engin ummæli: