fimmtudagur, október 14, 2004

Danmerkurferðin í ágúst - september 2004


Sætar systur í bambagarðinum í Aarhus í ágúst sl. Posted by Hello
Við skelltum okkur til Danmerkur í tvær vikur sem var alveg meiriháttar gaman. Það var ótrúlegt hvað við höfðum gott af þeirri ferð, hittum fullt af fólki og gátum einnig slakað rosalega vel á. Við vorum fyrst í Kaupmannahöfn hjá Ágústi bróður hans Eyþórs. Það var rosalega gaman að hitta alla þar. Við tókum okkur einn dag í Tívolínu og skemmtum okkur rosalega vel þar, veit ekki hvort börn eða fullorðnir skemmtu sér betur c") Pabbi hans Eyþórs kom frá Svíþjóð sem var stór plús því það var eitthvað sem við vissum ekkert um. Við fórum svo yfir til Jótlands m.a. svo Eyþór gæti farið á mótorhjólamót - Morsten :) þá skelltum við dömurnar okkur hinsvegar í heimsókn til Elísabetar, Vigfúsar, Ágústu Eir og Heimis Þórs sem búa í Hobro, það var rosalega gaman. Gistum hjá Nonna og Áslaugu í rúma viku, okkur leið alveg rosalega vel þar og þökkum við æðislega fyrir okkur.

Engin ummæli: