Hæ
Ég var að setja inn tengil þar sem hægt er að downloada forriti svo hægt sé að tala saman á netinu - FRÍTT, ekki skrifa heldur tala. Það eina sem maður þarf að eiga er headset með mic. Forritið er frítt og eini kostnaðurinn er sá að vera tengdur netinu, ekkert annað.
Ef þið hlaðið niður forritinu þá getið þið fundið okkur með því að fara inn í Tools - Search for skype users..... svo sláið þið bara inn notendanafnið okkar í Look for ..... Gæti ekki verið auðveldara.
miðvikudagur, nóvember 24, 2004
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Helgin
Við skelltum okkur með saumaklúbbinum mínum á jólahlaðborð á Broadway á laugardaginn. Það var alveg rosalega gaman. Maturinn var fínn en sjóvið og ballið var alveg meiriháttar. Það var verið að sýna "Með næstum allt á hreinu" sem er söngleikur með Stuðmannalögum. Það myndaðist frábær stemmning í salnum og ég held að það hafi varla verið nokkur maður sem ekki söng með og dillaði sér á stólnum. Síðan var hljómsveitin "Í svörtum fötum" að spila á ballinu og það var ekki síður skemmtilegt enda var maður aðallega á dansgólfinu að tjútta. Það er langt síðan ég hef skemmt mér svona rosalega vel. Lappirnar á mér voru ansi lúnar daginn eftir en það skiptir ekki máli þetta var svo rosalega gaman.
Perla tók þátt í Íslandsmóti í fimleikum á laugardaginn og hún stóð sig með ágætum þó svo að hún hafi ekki unnið nein verðlaun enda mörg félög að keppa og minni möguleikar á að næla sér í medalíu.
Perla tók þátt í Íslandsmóti í fimleikum á laugardaginn og hún stóð sig með ágætum þó svo að hún hafi ekki unnið nein verðlaun enda mörg félög að keppa og minni möguleikar á að næla sér í medalíu.
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Þetta virðist allt ætla að ganga upp hjá okkur :) Við seldum íbúðina okkar í dag, jess. Þá getur maður slakað á yfir því. Við fáum afhent ekki seinna en 20. janúar og eigum að skila okkar 1. febrúar, þetta smellpassar allt saman.
Skólahald hér á Íslandi er í tómu tjóni. Sett voru lög á kennara um helgina og í gær voru nánast allir krakkarnir sendir heim því kennarar voru annað hvort "veikir" eða ákváðu að mæta ekki og í dag þá var þetta svipað, við sendum stelpurnar ekki í skólann í dag. Ég held ég hafi heyrt einhversstaðar í gær að um 20% kennara hafi mætt til vinnu í gær, þori þó ekki að fullyrða þá tölu en ástandið er vægast sagt mjög slæmt. Kennarar eru svo sárir og svekktir að það ætla mjög margir að segja upp hef ég heyrt.
Aðeins yfir í léttari sálma, nú kyngir niður snjó þannig að krakkarnir eru duglegir að fara út að leika sér enda er alltaf gaman að leika sér í snjónum.

miðvikudagur, nóvember 03, 2004
Hitt og þetta
Það er allt fínt að frétta af okkur, dagarnir gjörsamlega fljúga frá manni. Eyþór flaug til Tálknafjarðar um helgina til að spila, það gekk ágætlega nema það vantaði allt fólkið á staðinn. Mér skildist að það hefði verið árshátíð helgina áður þannig fólk var kannski enn að jafna sig eftir hana svo voru heldur ekki komin mánaðarmót þannig að enginn hefur átt pening til að fara á djammið. Það er hinsvegar alltaf sama sagan með mig, læra, læra, læra - það er samt svo erfitt að sitja bara og lesa enda er ég iðulega að finna mér eitthvað annað að gera eins og að setja í þvottavélina og þess háttar, kannast ekki einhver við þetta!!!
Stelpurnar fór í skólann á mánudaginn eftir 6 vikna verkfall sem væntanlega heldur áfram nk. þriðjudag þ.e. ef kennararnir fella samninginn sem flestir búast við. Þetta er ömurlegt ástand, vona að það leysist nú samt fljótlega og það verði gerðir samningar en ekki verði sett lög á kennarana, ekki er það nú betra. Stelpurnar eru mjög ánægðar í skólanum núna og ég er ekki frá því að það sé aðeins léttara yfir þeim núna enda ekki gaman að hanga heima í 6 vikur.
Það byrjaði að gjósa í Grímsvötnum á mánudagskvöldið 1. nóv. hægt að fylgjast með því á mogganum.

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)