Þetta virðist allt ætla að ganga upp hjá okkur :) Við seldum íbúðina okkar í dag, jess. Þá getur maður slakað á yfir því. Við fáum afhent ekki seinna en 20. janúar og eigum að skila okkar 1. febrúar, þetta smellpassar allt saman.
Skólahald hér á Íslandi er í tómu tjóni. Sett voru lög á kennara um helgina og í gær voru nánast allir krakkarnir sendir heim því kennarar voru annað hvort "veikir" eða ákváðu að mæta ekki og í dag þá var þetta svipað, við sendum stelpurnar ekki í skólann í dag. Ég held ég hafi heyrt einhversstaðar í gær að um 20% kennara hafi mætt til vinnu í gær, þori þó ekki að fullyrða þá tölu en ástandið er vægast sagt mjög slæmt. Kennarar eru svo sárir og svekktir að það ætla mjög margir að segja upp hef ég heyrt.
Aðeins yfir í léttari sálma, nú kyngir niður snjó þannig að krakkarnir eru duglegir að fara út að leika sér enda er alltaf gaman að leika sér í snjónum.
þriðjudagur, nóvember 16, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli