Við skelltum okkur með saumaklúbbinum mínum á jólahlaðborð á Broadway á laugardaginn. Það var alveg rosalega gaman. Maturinn var fínn en sjóvið og ballið var alveg meiriháttar. Það var verið að sýna "Með næstum allt á hreinu" sem er söngleikur með Stuðmannalögum. Það myndaðist frábær stemmning í salnum og ég held að það hafi varla verið nokkur maður sem ekki söng með og dillaði sér á stólnum. Síðan var hljómsveitin "Í svörtum fötum" að spila á ballinu og það var ekki síður skemmtilegt enda var maður aðallega á dansgólfinu að tjútta. Það er langt síðan ég hef skemmt mér svona rosalega vel. Lappirnar á mér voru ansi lúnar daginn eftir en það skiptir ekki máli þetta var svo rosalega gaman.
Perla tók þátt í Íslandsmóti í fimleikum á laugardaginn og hún stóð sig með ágætum þó svo að hún hafi ekki unnið nein verðlaun enda mörg félög að keppa og minni möguleikar á að næla sér í medalíu.
þriðjudagur, nóvember 23, 2004
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli