Jæja þá er gamli síminn minn dauður. Ég gat ekki tekið læsinguna af símanum nema slökkva á honum og kveikja, gat ekki hringt og gat ekki séð símanúmerin í símaskránni minni - semsagt handónýtur :/ Ási er líka búinn að vera duglegur við að naga takkana af honum og vantaði orðið 3 takka þannig ég gat ekki hringt í númer sem voru með 7 eða 0 - átti líka orðið í vandræðum með að skrifa sms þar sem 0 var dottinn af og því ekkert bil í skilaboðunum hjá mér - allt í langri romsu sem og takkinn sem gerir há- og lágstafi var líka dottinn af. Því var bara eitt að gera .... kaupa jólagjöf fyrir sjálfa mig. Ég fékk mér þennan glæsilegan hvítan NOKIA 6120 síma , ekkert smá flottur. 
Nú get ég svarað sms aftur :-)
Annars er bara fínt að frétta af okkur. Ég er komin með vinnu hjá Deliotte og byrja á miðvikudaginn. Er rosa spennt að byrja en er ekki er laust við smá kvíða :-p en þetta verður bara spennandi. Eyþór er ekki enn kominn með neitt sem er kannski bara ágætt að vissu leiti, það verður fínt fyrir hann að pústa aðeins í janúar eftir erfiða törn nú í desember og síðustu mánuði. Stelpurnar eru komnar í jólafrí eftir jólaskemmtun í skólanum á fimmtudaginn þannig vonandi fer maður að hrökkva í jólagírinn. Ég er ekki komin í neitt sérstakt jólaskap ennþá en vonandi kemur það. Ég ætla að skella mér á mánudaginn og þriðjudaginn í búðir og klára jólagjafainnkaupin, nenni ekki að eyða alltof löngum tíma í þetta, fæ einhvernvegin hálfgerða innilokunarkennd í þessu kraðaki og verð bara pirruð.
Ási er hress, búinn að vera MJÖG duglegur að tæta hér heima sem og hjá dagmömmunni :-o en hann er alltaf jafn yndislegur. Hann fór í sína fyrstu klippingu 29. nóvember sl. og fékk þessa fínu herraklippingu.
Perla átti afmæli fyrir rétt rúmri viku og er því orðin 13 ára gömul skvísa - það er alveg með ólíkindum hvað tíminn líður hratt. Ólöf verður svo 10 ára á miðvikudaginn nk.
Bið að heilsa ykkur í bili og ..... best að segja ekki meir, sjáum bara til hversu dugleg ég verð í blogginu :-D það er aldrei að vita ;-p