sunnudagur, janúar 15, 2006

Snjór

















Mikið rosalega snjóaði aðfaranótt föstudagsins. Það er hreinlega allt á kafi í snjó. Það var roslega jólalegt þegar maður leit út þann daginn þó svo að jólin teljist vera búin. Stelpurnar eru búnar að vera duglegar að fara út og leika sér í snjónum. Ókosturinn við allan þennan snjó er að það þarf að moka en ég á svo góðan mann sem sér um það ;)

laugardagur, janúar 14, 2006

Myndir

Það eru komnar inn myndir frá jólum og áramótunum :)

mánudagur, janúar 09, 2006

Gleðilegt nýtt ár.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.


Nú er skólinn byrjaður hjá bæði mér og stelpunum. Við erum búin að hafa það rosalega fínt, algjör leti í gangi, ég er nánast búin að gera "ekki neitt" nema taka því bara rólega - sem er alls ekki slæmt, finnst mér a.m.k. Jú, ég gerði tvennt :) ég er búin að láta laga nettenginguna sem var í argasta ólagi og straujaði tölvuna mína því hún var líka í algjöru ólagi. Svo las ég jú Ísfólkið (ekki allt en nokkrar bækur) - mikið ótrúlega er gaman að lesa svona auðvelda lesningu - annað en þessar heavy skólabækur.

Ólöf og strákarnir voru hér yfir áramótin og mikið var rosalega gaman að sjá þau og hafa þau hér. Þau fóru aftur til Belgíu snemma á sunnudagsmorguninn, ekki öfunda ég þau að vakna um miðja nótt, ahhh.

Mér og Eyþóri tókst svo að ná okkur í einhverja flensu og erum búin að vera þrælkvefuð og slöpp en erum nú óðum að hressast :)
Ég er svo gjörsamlega búin að snúa við sólarhringnum að ég átti í mesta basli með að sofna í gærkvöldi, held ég hafi náð ca. 4 tíma svefni í nótt (vá), svo þurfti ég að vakna kl. 7 í morgun, vona að það gangi betur að sofna í kvöld enda er ég orðin syfjuð NÚNA (kl. 17.45).