Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Nú er skólinn byrjaður hjá bæði mér og stelpunum. Við erum búin að hafa það rosalega fínt, algjör leti í gangi, ég er nánast búin að gera "ekki neitt" nema taka því bara rólega - sem er alls ekki slæmt, finnst mér a.m.k. Jú, ég gerði tvennt :) ég er búin að láta laga nettenginguna sem var í argasta ólagi og straujaði tölvuna mína því hún var líka í algjöru ólagi. Svo las ég jú Ísfólkið (ekki allt en nokkrar bækur) - mikið ótrúlega er gaman að lesa svona auðvelda lesningu - annað en þessar heavy skólabækur.
Ólöf og strákarnir voru hér yfir áramótin og mikið var rosalega gaman að sjá þau og hafa þau hér. Þau fóru aftur til Belgíu snemma á sunnudagsmorguninn, ekki öfunda ég þau að vakna um miðja nótt, ahhh.
Mér og Eyþóri tókst svo að ná okkur í einhverja flensu og erum búin að vera þrælkvefuð og slöpp en erum nú óðum að hressast :)
Ég er svo gjörsamlega búin að snúa við sólarhringnum að ég átti í mesta basli með að sofna í gærkvöldi, held ég hafi náð ca. 4 tíma svefni í nótt (vá), svo þurfti ég að vakna kl. 7 í morgun, vona að það gangi betur að sofna í kvöld enda er ég orðin syfjuð NÚNA (kl. 17.45).
mánudagur, janúar 09, 2006
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli