miðvikudagur, mars 21, 2007
Tannsi
Í dag var farin hópferð til tannlæknis, ég, Perla, Ólöf og Ási þó svo að sá síðarnefndi sé vita tannlaus. Það var ekki laust við að smá kvíði væri í mér, enda er ég haldin smá tannlæknafóbiu. Þar sem ég sat og beið eftir að stelpurnar væru búnar fékk ég hausverk sem ég tengi algjörlega stressi og kvíða fyrir að fara til tannlæknis. Annars gekk þetta stórslysalaust fyrir sig og amman kom líka á tannlæknastofuna til að passa litla gaur á meðan mamman skaust inn til tannsa. Við þurfum þó að kíkja aftur til tannsa vegna pínu viðgerða sem þarf að gera. Segi nú bara "Mikið dj#%$# er dýrt að fara til tannlæknis.
mánudagur, mars 19, 2007
Mánudagur og helgin búin
Nú sit ég og rembist við að gera verkefni sem við eigum að skila 29. mars. Ég neita því ekki að stundum langar mig virkilega bara að fresta náminu og njóta þess að vera heima með Ásbirni Frey en svo er það að það er svo lítið eftir að ég yrði frekar fúl út í mig ef ég sæti svo næsta vor við skrifborðið og vinna verkefni sem ég hefði geta gert síðasta vor (þ.e. núna), það er eiginlega það sem heldur mér gangandi við þetta skólastúss.
Eyþór er búinn að vera að taka upp plötu með hljómsveitinni sinni "Stormur í aðsigi" og var að tónleikast þessa helgina. Annars er hann svo lítið við að þið verðið eiginlega bara að hringja í hann og vita hvað er að frétta af honum, hihi.
Ása Frey tókst að velta sér í fyrsta skiptið á fimmtudaginn 15.03.2007 (á afmælisdegi Skugga) og mamman er ekkert smá stolt af drengnum. Hann fór svo í 5 mánaða skoðun á þriðjudaginn sl. og vó hvorki meira né minna en 9,125 kg og var orðinn 66 cm langur. Vaxtakúrfan hans er búin að vera nánast beint upp í loftið en var aðeins farin að halla núna sem er í góðu lagi. Hjúkkan er rosalega ánægð með drenginn enda dafnar hann mjög vel. Ég er svo einnig að reyna að halda dagbók fyrir Ásbjörn Frey á barnalandi fyrir þá sem vilja fylgjast með drengnum nánar ;-)
Stelpurnar eru alltaf jafn yndislegar og góðar. Passa fyrir mömmu þegar á þarf að halda. Nóg er að gera í skólanum hjá þeim og í þessari viku og næstu þá eru kennaranemar hjá þeim og það á örugglega eftir að vera mjög skemmtilegt - smá tilbreyting frá allri þessari rútínu.
Skuggi varð 2ja ára 15. mars og í því tilefni var Ösku vinkonu hans boðið í heimsókn ásamt fjölskyldu. Sá var ekkert smá glaður að fá hana Ösku í heimsókn til sín :)

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)