miðvikudagur, mars 21, 2007

Tannsi

Í dag var farin hópferð til tannlæknis, ég, Perla, Ólöf og Ási þó svo að sá síðarnefndi sé vita tannlaus. Það var ekki laust við að smá kvíði væri í mér, enda er ég haldin smá tannlæknafóbiu. Þar sem ég sat og beið eftir að stelpurnar væru búnar fékk ég hausverk sem ég tengi algjörlega stressi og kvíða fyrir að fara til tannlæknis. Annars gekk þetta stórslysalaust fyrir sig og amman kom líka á tannlæknastofuna til að passa litla gaur á meðan mamman skaust inn til tannsa. Við þurfum þó að kíkja aftur til tannsa vegna pínu viðgerða sem þarf að gera. Segi nú bara "Mikið dj#%$# er dýrt að fara til tannlæknis.

Engin ummæli: