þriðjudagur, desember 27, 2005

Gleðileg jól

Gleðileg jól allir saman og takk fyrir kortin.
Við erum búin að hafa það rosalega fínt. Búin að vera í algjörri afslöppun sem við virkilega þörfnuðumst.
Jólakveðja,
fjölskyldan Holtagerði

mánudagur, desember 19, 2005

Ólöf á afmæli

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Ólöf
hún á afmlæli í dag

Hún er átta ára í dag
hún er átta ára í dag
hún er átta ára hún Ólöf
hún er átta ára í dag

miðvikudagur, desember 07, 2005

Perla á afmæli :)

Hún á afmæli í dag
hún á afmæli í dag
hún á afmæli hún Perla
hún á afmæli í dag

Hún er 11 ára í dag
hún er 11 ára í dag
hún er 11 ára hún Perla
hún er 11 ára í dag

Veeeeiiiiiiii

Hamingju óskir frá mömmu, pabba, Ólöfu Maríu, Skugga, Kalla, Trítil og Stúart (ekkert smá fjölskylda : D )

föstudagur, desember 02, 2005

Erum enn á lífi

Það mætti halda að við hefðum horfið af yfirborði jarðar, ekkert hefur heyrst frá okkur mjög lengi. Það er búið að vera rosa vinnutörn hjá Eyþór vegna manneklu og ekki skánar nú ástandið þegar jólatraffíkin er að byrja. Ég er komin í próflestrarfrí með tilheyrandi afmælisveislum inn á milli því eins og sumir vita þá eiga báðar dömurnar afmæli í desember :) 7. og 19. des. Þar sem ég verð á fullu í prófum þegar Perla Ósk á afmæli þá fékk hún að halda upp á bekkjarafmælin sín í gær. NB! afmælin!!! Hún bauð nýja bekknum kl. 3 og gamla bekknum kl. 6.30. Þetta var heljarinnar fjör með tilheyrandi látum. Húsmóðirin gerði mest lítið annað en að baka pizzur þann daginn og voru allir mjög sáttir við þær enda listapizzugerðamaður hér á ferð ;D ekki satt?
Á morgun verður svo fjölskylduafmælið stóra (fyrir báðar dömurnar), það verður væntanlega aðeins rólegra heldur en bekkjarafmælin, geri a.m.k. ráð fyrir því enda ætti fullorðnafólkið að vera vaxið upp úr þessu flissi og skríkjum :) Ætli Ólöf María fái svo ekki að halda upp á sitt bekkjarafmæli þegar prófin eru búin hjá mér eða eftir 20. des en það ætti að vera í lagi því hún á jú afmæli 19. des.
Ég ætla nú að reyna að smella af nokkrum myndum á morgun og henda inn á netið svona svo fólk geti nú séð hvernig við lítum út.