föstudagur, desember 02, 2005

Erum enn á lífi

Það mætti halda að við hefðum horfið af yfirborði jarðar, ekkert hefur heyrst frá okkur mjög lengi. Það er búið að vera rosa vinnutörn hjá Eyþór vegna manneklu og ekki skánar nú ástandið þegar jólatraffíkin er að byrja. Ég er komin í próflestrarfrí með tilheyrandi afmælisveislum inn á milli því eins og sumir vita þá eiga báðar dömurnar afmæli í desember :) 7. og 19. des. Þar sem ég verð á fullu í prófum þegar Perla Ósk á afmæli þá fékk hún að halda upp á bekkjarafmælin sín í gær. NB! afmælin!!! Hún bauð nýja bekknum kl. 3 og gamla bekknum kl. 6.30. Þetta var heljarinnar fjör með tilheyrandi látum. Húsmóðirin gerði mest lítið annað en að baka pizzur þann daginn og voru allir mjög sáttir við þær enda listapizzugerðamaður hér á ferð ;D ekki satt?
Á morgun verður svo fjölskylduafmælið stóra (fyrir báðar dömurnar), það verður væntanlega aðeins rólegra heldur en bekkjarafmælin, geri a.m.k. ráð fyrir því enda ætti fullorðnafólkið að vera vaxið upp úr þessu flissi og skríkjum :) Ætli Ólöf María fái svo ekki að halda upp á sitt bekkjarafmæli þegar prófin eru búin hjá mér eða eftir 20. des en það ætti að vera í lagi því hún á jú afmæli 19. des.
Ég ætla nú að reyna að smella af nokkrum myndum á morgun og henda inn á netið svona svo fólk geti nú séð hvernig við lítum út.

Engin ummæli: