mánudagur, desember 25, 2006

Gleðileg jól
og
farsælt komandi ár

mánudagur, desember 04, 2006

Busy people

Nú er að hefjast próftörn hjá mér og vinnutörn hjá Eyþóri þannig það verður eflaust lítið bloggað næstu 2 vikurnar s.s. minna en vanalega, gæti þó orðið meira því oft vill verða svo að maður dettur úr lærdómsstuði og fer að eyða tímanum í eitthvað sem maður á ekkert að vera að eyða tímanum í.
By the way þá er allt fínt að frétta, drengurinn heldur áfram að halda okkur vaknandi til kl. 2.30 en það er verið að vinna í að reyna að laga þetta. Fór á föstudaginn í jurtaapótek og fékk einhverja blöndu handa drengnum til að reyna að róa magann. Mér var bent á þetta af skólasystur minni sem veit til þess að þetta hafi hjálpað barni einhverrar sem hún þekkir eða er skyld (skiptir ekki öllu máli) en það tók um viku þannig ég krosslegg fingur og vona það besta. Drengurinn sefur hinsvegar eins og engill á morgnanna, alveg til kl. 11 þannig mamman er dugleg að leggja sig eftir dömurnar eru farnar af stað í skólann en í dag ræður hinsvegar lærdómurinn ríkjum og stefnt er að því að vera dugleg og fara ekki að sofa heldur leggja sig kannski aðeins í dag ef orkan er öll úti.
Nóg í bili, ætla ekki að eyða allri orkunni í blogg heldur fara að læra. C ya

miðvikudagur, nóvember 15, 2006

Hæ!!

Hæ!!
Var að setja inn nokkrar nýjar myndir af Ása pjása inn á síðuna hans á barnalandi.

mánudagur, nóvember 06, 2006

Afmæli - til hamingju Eyþór

Hér gengur allt rosalega vel, nóg að gera.
Haldið var upp á 35 ára afmæli Eyþórs um helgina og höfðum við opið hús sem er að mínu mati mjög þægilegt. Maður nær að spjalla við alla og setjast aðeins niður með fólk í staðinn þegar allir koma í einu og maður nær bara að spjalla við helminginn, þannig ég er mjög ánægð með þennan dag og Eyþór að sjálfsögðu líka.

Litli prinsinn dafnar vel og er að verða fjögurra vikna á miðvikudaginn nk. Hann er mjög góður litli kúturinn en lætur orðið aðeins hafa meira fyrir sér á kvöldin og hleypir mömmu og pabba ekkert sérlega snemma í rúmið. Mamman er því ansi lengi að koma sér fram úr á morgnanna, er ekki með fullri meðvitund fyrr en um 11-12 leytið þó svo að það sé vaknað með dömunum á morgnanna og komið af stað í skólann að þá er farið upp í bælið aftur og prinsinum gefinn morgundrykkur og svo rotast bæði mamman og prinsinn eftir það. Það er alveg sama þó að vekjaraklukka sé stillt hún fær að hringja á 10 mín. fresti í klukkutíma án þess að það hafi nokkur áhrif á mömmuna sem er gjörsamlega rotuð og er orðin þjálfuð í að hitta á snooze takkann ;) á vekjaranum. Mamman stefnir nú samt á það á fimmtudags- og föstudagsmorguninn að fara í skólann kl. 8.20 (gangi mér vel).

fimmtudagur, október 19, 2006

Lítill prins er fæddur

Jæja, langt er síðan heyrst hefur frá okkur en margt hefur gerst síðan þá. Litill prins er fæddur og var hann frekar mikið að flýta sér. Hann kom 11 dögum fyrir setta dagsetningu, fæddist semsagt þann 11. október 2006. Við rétt náðum að komast inn á deildina áður en sá litli birtist, það tók um 9 mínútur frá því við komum þar til drengurinn var fæddur, geri aðrir betur ;) Ég er mjög fegin hvað þetta tók fljótt af og bara búið 1, 2 og 3. Hann var 13,5 mörk og 50 cm.



Hann er semsagt orðin 8 daga gamall og er BARA yndislegur. Hann er alveg ótrúlega vær og rólegur, lætur aðeins heyra í sér þegar hann er svangur og svo þegar verið er að skipta á honum. Hann er ekkert alveg sáttur við að láta leggja sig niður á skiptiborðið en þetta er allt að koma hjá honum. Stelpurnar eru rosalega ánægðar með litla bróður og eru duglegar að hjálpa til. Það er semsagt mikil sæla á þessu heimili. Látum heyra frá okkur fljótlega aftur.

Var að setja inn myndir í albúmið af litla prinsinum.

miðvikudagur, september 20, 2006

Einbeitingarleysi er það sem er að hrjá mig!!!

Var í mæðraskoðun í morgun og allt er í góðu lagi, fínn hjartsláttur og drengurinn snýr rétt þó svo hann sé ekki búinn að skorða sig. Blóðþrýstingurinn í góðu lagi og allt lítur vel út. Nú eru tæpar fimm vikur eftir eða nákvæmlega 4 vikur og 4 dagar og allir að farast úr spenningi og þá sérstaklega dömurnar tvær. Gaman að upplifa þessa spennu í gegnum þær.
Ég var hinsvegar mjög fegin að heyra ljósmóðurina segja að einbeitingarleysi væri oft hjá ófrískum konum .... passar akkúrat við mig þessa dagana. Ég hef verið að vandræðast yfir einbeitingarleysi við lestur skólabókanna. NB! ég var ekki búin að nefna þetta við ljósuna áður en hún sagði þetta. Ég er farin að finna fyrir smá samdráttum en ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af.

Ég er alltaf á leiðinni að fá skanna lánaðan hjá bróður mínum til að setja inn sónarmyndirnar, ætli þær komi ekki bara eftir á m.v. framtaksemina hjá mér og einbeitinguna

Eyþór er að fara að spila á Snæfellsnesi á laugardaginn, á einhverju réttarballi með félögum sínum úr Stormi í aðsigi (held ég að það heiti). Mér og stelpunum er boðið að koma með og gista á gistiheimilinu hjá Kela en eins og ég sef núorðið þá held ég að ég treysti mér bara ekki að gista annarsstaðar. Það er svo mikið brölt á mér að mér finnst bara best að halda mig heima við.

Stelpurnar eru duglegar í skólanum núna og Ólöf skellti sér í jassballet og finnst það mjög gaman. Perla fer eflaust eftir áramótin í eitthvað slíkt, hvort sem það er jassballet eða eitthvað sem heitir freestyle. Semsagt allt fínt að frétta á þessum bæ. Reyni að vera dugleg að henda inn fréttum hér svona fyrir þá sem vilja vita gang mála með þann ófædda.

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

X-factor

Þetta er æði, gat ekki annað en hlegið.

fimmtudagur, ágúst 17, 2006

Garghh

Ég veit ekki afhverju í ósköpunum ég er að gera mér þetta þ.e. að fara í sumarpróf. Þó svo að ég hafi haft nánast allt sumarið til að læra (sem ég trúi ekki að nokkur heilvita maður hafi gert, segi þetta kannski bara til að róa samviskubitið) að þá mjakast ég hægar en snigill í þessu. Ég skil þetta ekki hvernig orkan gjörsamlega sogast úr manni þegar farið er í prófstellingar, það er nánast eins og hausinn frjósi, kemst semsagt ekkert áfram. Gæti orðið biluð á þessu. Hlakka sem sagt mikið til eftir kl. 13 eftir viku. Ég væri í rauninni meira til í að taka til eða eitthvað slíkt. Hafið það annars gott þið sem nennið að lesa þessa örfáu línur sem detta hér inn með löngu millibili.

sunnudagur, ágúst 06, 2006

Verslunarmannahelgin

Jæja þá er þetta byrjað - verslunarmannahelgin. Við ákváðum að vera í bænum enda er ég ekki að nenna að fara í útilega núna, vil helst sofa í rúminu heima hjá mér. Perla fór hinsvegar með vinkonu sinni á ... takið eftir, dudurudu á Þjóðhátíð í Eyjum, þetta byrjar snemma. Þær fara hinsvegar ekki alveg einar enda hefði það ekki verið tekið til greina ef sú staða hefði komið upp, það eru foreldrar með. Ég er búin að heyra í henni á hverjum degi, hún fór á miðvikudag og kemur næsta miðvikudag, allt gott að frétta af henni og bara gaman gaman. Eyfi er að koma svo til landsins í dag og er þá alkominn, fluttur aftur til Íslands - velkominn Eyfi, hlakka til að sjá þig. Ég sit svo hér heima og reyni að læra sem gengur nú alveg þokkalega, þó engin rosalegur hraði í þessu hjá mér en þetta mjakast. Fer í fyrsta prófið 15. ágúst. Eyþór neyddist til að vinna í dag þar sem skortur er á starfsmönnum í dag, hann ætlaði að reyna að vera í fríi enda margt að gera hér á heimilinu þar sem ákveðið var að halda hér grillveislu nk. laugardag fyrir næstum 50 manns, OMG! Það er samt fín ástæða til að drífa ýmis verk áfram sem löngu átti að vera búið að framkvæma enda framtaksemin á þessu heimili mjög mikil ;)

fimmtudagur, júlí 20, 2006

Júlí

Af okkur er allt fínt að frétta, ekki laust við að maður sé orðin fúll yfir veðrinum hér á Frónni...rigning, rigning, rigning... hva er rigning, ég bara trúi þessu varla. En í dag er sól og steikjandi hiti. Ég var að reyna að liggja í sólbaði en Vá ég er orðin svo óvön þessum hita að það er varla að ég tolli úti og skrapp því aðeins inn til að fikta í tölvunni, aldrei þessu vant enda hef ég mjög lítið verið í tölvunni eins og sést kannski á bloggárangri. Það hefur bara ekki mikið verið að gerast hér hjá okkur. Við vorum í sumarfríi allan júní og fórum í eina útilegu, eina veiðiferð og viku í sumarbústað sem var bara mjög gaman.

Litla bumbulingnum líður vel - spriklar að minnsta kosti alveg nóg fyrir mömmuna ;) en nú styttist í hann komi í heiminn - hans er vænst 22. október.

Ég lofa nú ekki miklu bloggi hér hjá okkur, við erum vægast sagt mjög ódugleg í þessu en ekki gefast samt upp á okkur, það getur alltaf slæðst inn hjá okkur ein og ein lína. Nóg í bili, ég ætla að drífa mig út í góða veðrið, loksins þegar það kom.

Myndbönd

Það tókst hjá mér að setja inn myndbönd af hvolpunum. Ætlaði að vera löngu búin að pæla í þessu en það hafðist ekki fyrr en núna. Hvolparnir eru náttúrulega orðnir mun stærri og komnir með sína fjölskyldu en betra seint en aldrei.

mánudagur, maí 01, 2006

Góð helgi

Mikið um heimsóknir þessa helgina, mjög gaman. Okkur var boðið til Kristínar og Nonna á föstudagskvöldið, smá Österby samkoma til heiðurs Atla og fjölskyldu á laugardeginum og svo opið hús hjá Andrési vini Eyþórs í tilefni afmæli hans og bróðurs á sunnudeginum. Segi bara kærar þakkir fyrir mig og mína. Gaman að hitta ykkur öll.

Nú verð ég hinsvegar að einbeita mér að próflestri því það eru fjögur próf framundan á tæpri viku. Hlakka mikið til þegar þessi hryllingur er búinn.

Ég setti inn nýjar hvolpamyndir um daginn fyrir þá sem vilja skoða en ég hef ekki ennþá fundið út hvernig á að setja inn myndbönd - tekst ekki. Það virðist samt ekkert mál að setja inn myndbönd sem maður finnur á netinu en tekst ekki þegar ég ætla að tengja það beint úr tölvunni minni. Þetta eru svo stórir fælar að ég efast um það sé hægt að senda þau í tölvupósti (þónokkur MB)- en ef þið viljið að ég reyni að senda ykkur þá sendið mér tölvupóst. Hinsvegar ef einhver veit aðferð til að setja inn myndbönd þá endilega speak up. Ég ætla að skoða málið betur eftir próf, má ekki eyða tímanum í að finna út úr því núna - ég á mjög auðvelt með að gleyma mér í einhverju svona dútli sem gengur ekki alveg upp þegar maður á að vera að lesa fyrir próf....


Eyþór og Perla fóru í hópkeyrslu Sniglanna í tilefni 1. maí og eru ennþá, eflaust mjög gaman hjá þeim enda búið að vera fínt verður en ég heyri þó að það er að byrja að rigna, æ,æ - vona að þeim verði ekki kalt. En svona er Ísland í dag ..... allra veðra von ;)
.......

Biða að heilsa ykkur í bili, verð að halda áfram að læra.

laugardagur, apríl 15, 2006

Gleðilega páska


Sæl öll

Við óskum ykkur ....

Gleðilegra páska

.... og vonum að þið hafið það gott. Belgið ykkur út af dýrindis páskaeggjum, namm namm. Það er einmitt það sem ég ætla að gera á morgun, engin megrun á morgun ónei!.

Páskakveðja frá okkur öllum

þriðjudagur, apríl 04, 2006

Síðasta kennsluvikan - jey


Þá er apríl genginn í garð sem og síðasta vikan í skólanum (jibbí). Það styttist óðfluga í prófin og nú verð ég að hafa mig alla við að vera dugleg í upplestrarfríinu - ekkert slugs Inga.
Ég vona að þið hafið náð að gabba einhvern 1. apríl - ég fór í fermingu hjá frænda mínum þann daginn og gjörsamlega gleymdi alveg að láta mér detta eitthvað sniðugt í hug - en það plataði mig heldur enginn - a.m.k. hef ég þá ekki fattað það ennþá, haha.

mánudagur, mars 27, 2006

Júróvisíon 2006

Horfið á þetta. Þetta er bara frábært.

Hvolpamyndir og við þessa dagana

Jæja, best að henda inn nokkrum línum.
Er að setja inn nýjar myndir af hvolpunum. Ég læt allt flakka hvort sem það eru góðar myndir eða ekki.
Það er búið að vera mikið að gera á þessum bæ. Skólinn nánast búinn að hertaka mig sem og ísfólksbækurnar ;p ég verð bara að segja að mér finnst Það svo ótrúlega notalegt að geta bara legið upp í rúmi og lesið og lesið, get varla hætt fyrr en bókin er búin. Nú er hinsvegar lokaspretturinn í skólanum enda ekki nema 2 vikur eftir ó mæ god. Ég verð fegin þegar þetta er búið, batteríin eru alveg að verða búin hjá mér, ég er farin að hiksta ;) þarf að fara að hlaða.
Einnig hefur verið nóg að gera hjá Eyþór og þá mest í vinnunni enda er hann nánast alltaf þar :( en svona er þetta eins og er. Hann tók þó smá syrpu hér um helgina og fékk lánaða kerru hjá Arnari til að henda rusli sem er búið að safnast saman inn í skúr og fyrir utan. Jólatréð fékk líka far með þessari fínu kerru, roðn - framtakssemin er svo rosaleg á þessu heimili, en það var þó komið úr stofunni fyrir löngu.
Stelpurnar fóru til ömmu sinnar í sveitina á laugardaginn og gistu eina nótt og tók fullt af myndum af hvolpunum sem eru algjörar dúllur, ég þarf að fara fljótlega og kíkja því ég hef sjálf ekki séð þá síðan þeir voru viku gamlir en nú eru þeir farnir að skottast út um allt og leika sér.

Sjúkit, ég hélt ég hefði hent öllu út sem ég var að skrifa. Ég ýtti á vitlausan takka þegar ég ætlaði að stroka út og allt í einu var ég komin þar sem ég skrái mig inn - ég fékk smá sjokk en einhvernveginn náði ég í textann aftur, sem betur fer - ég er ekki viss um að ég hefði nennt að skrifa allt aftur.

miðvikudagur, mars 08, 2006

Snúlla er orðin mamma

Þann 27. febrúar 2006 átti Snúlla 5 litlar sætar tíkur svartar að lit í hvítum sokkum. Búin að búa til albúm fyrir myndir af henni og hvolpunum. Set inn myndir um leið og nýjar koma.

þriðjudagur, febrúar 07, 2006

Febrúar

Voðalega er þetta týpiskt. Perla tók sig til áðan og skrifaði nokkra línur en það tókst ekki betur en svo að það datt allt út. Hún gerir bara aðra tilraun síðar.
Það er búið að vera nóg að gera undanfarið og ekki á það eftir að róast í þessum mánuði. Eyþór nýkominn úr vinnuferð frá Noregi og mér skilst að það hafi verið rosalega gaman, því trúi ég mjög vel. Frábært að fara svona ferð með vinnufélögunum - hlýtur að hafa verið rosalegt stuð á liðinu!
Mikið er ég spæld að við skulum ekki hafa komist áfram í EM í handbolta en ég er rosalega ánægð með strákana okkar þeir stóðu sig eins og hetjur á mótinu. Unnu Rússa sem er stórsigur út af fyrir sig!
Silvía Nótt er gjörsamlega að slá í gegn hér á landi - þið sem búið erlendis (líka þið hér heima) getið kíkt á www.ruv.is eða séð það hér.... Til hamingju Ísland og hin lögin sem voru 04. febrúar. Fleiri lög eru líka á laugardeginum áður og þar áður (það er víst ekki hægt en næsta laugardag verða öll lögin sýnd).
Ég lofa engu með að vera duglegri að blogga en skal reyna að gera heiðarlega tilraun. Stundum hefur maður ekki frá neinu merkilegu að segja.

sunnudagur, janúar 15, 2006

Snjór

















Mikið rosalega snjóaði aðfaranótt föstudagsins. Það er hreinlega allt á kafi í snjó. Það var roslega jólalegt þegar maður leit út þann daginn þó svo að jólin teljist vera búin. Stelpurnar eru búnar að vera duglegar að fara út og leika sér í snjónum. Ókosturinn við allan þennan snjó er að það þarf að moka en ég á svo góðan mann sem sér um það ;)

laugardagur, janúar 14, 2006

Myndir

Það eru komnar inn myndir frá jólum og áramótunum :)

mánudagur, janúar 09, 2006

Gleðilegt nýtt ár.

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.


Nú er skólinn byrjaður hjá bæði mér og stelpunum. Við erum búin að hafa það rosalega fínt, algjör leti í gangi, ég er nánast búin að gera "ekki neitt" nema taka því bara rólega - sem er alls ekki slæmt, finnst mér a.m.k. Jú, ég gerði tvennt :) ég er búin að láta laga nettenginguna sem var í argasta ólagi og straujaði tölvuna mína því hún var líka í algjöru ólagi. Svo las ég jú Ísfólkið (ekki allt en nokkrar bækur) - mikið ótrúlega er gaman að lesa svona auðvelda lesningu - annað en þessar heavy skólabækur.

Ólöf og strákarnir voru hér yfir áramótin og mikið var rosalega gaman að sjá þau og hafa þau hér. Þau fóru aftur til Belgíu snemma á sunnudagsmorguninn, ekki öfunda ég þau að vakna um miðja nótt, ahhh.

Mér og Eyþóri tókst svo að ná okkur í einhverja flensu og erum búin að vera þrælkvefuð og slöpp en erum nú óðum að hressast :)
Ég er svo gjörsamlega búin að snúa við sólarhringnum að ég átti í mesta basli með að sofna í gærkvöldi, held ég hafi náð ca. 4 tíma svefni í nótt (vá), svo þurfti ég að vakna kl. 7 í morgun, vona að það gangi betur að sofna í kvöld enda er ég orðin syfjuð NÚNA (kl. 17.45).