miðvikudagur, september 20, 2006

Einbeitingarleysi er það sem er að hrjá mig!!!

Var í mæðraskoðun í morgun og allt er í góðu lagi, fínn hjartsláttur og drengurinn snýr rétt þó svo hann sé ekki búinn að skorða sig. Blóðþrýstingurinn í góðu lagi og allt lítur vel út. Nú eru tæpar fimm vikur eftir eða nákvæmlega 4 vikur og 4 dagar og allir að farast úr spenningi og þá sérstaklega dömurnar tvær. Gaman að upplifa þessa spennu í gegnum þær.
Ég var hinsvegar mjög fegin að heyra ljósmóðurina segja að einbeitingarleysi væri oft hjá ófrískum konum .... passar akkúrat við mig þessa dagana. Ég hef verið að vandræðast yfir einbeitingarleysi við lestur skólabókanna. NB! ég var ekki búin að nefna þetta við ljósuna áður en hún sagði þetta. Ég er farin að finna fyrir smá samdráttum en ekkert sem þarf að hafa áhyggjur af.

Ég er alltaf á leiðinni að fá skanna lánaðan hjá bróður mínum til að setja inn sónarmyndirnar, ætli þær komi ekki bara eftir á m.v. framtaksemina hjá mér og einbeitinguna

Eyþór er að fara að spila á Snæfellsnesi á laugardaginn, á einhverju réttarballi með félögum sínum úr Stormi í aðsigi (held ég að það heiti). Mér og stelpunum er boðið að koma með og gista á gistiheimilinu hjá Kela en eins og ég sef núorðið þá held ég að ég treysti mér bara ekki að gista annarsstaðar. Það er svo mikið brölt á mér að mér finnst bara best að halda mig heima við.

Stelpurnar eru duglegar í skólanum núna og Ólöf skellti sér í jassballet og finnst það mjög gaman. Perla fer eflaust eftir áramótin í eitthvað slíkt, hvort sem það er jassballet eða eitthvað sem heitir freestyle. Semsagt allt fínt að frétta á þessum bæ. Reyni að vera dugleg að henda inn fréttum hér svona fyrir þá sem vilja vita gang mála með þann ófædda.

1 ummæli:

Inga María sagði...

Ja, það er spurning hvort er!!! Skv. 20 vikna sónar þá er þetta strákur og hann var ekkert að fela það ;)