sunnudagur, ágúst 06, 2006
Verslunarmannahelgin
Jæja þá er þetta byrjað - verslunarmannahelgin. Við ákváðum að vera í bænum enda er ég ekki að nenna að fara í útilega núna, vil helst sofa í rúminu heima hjá mér. Perla fór hinsvegar með vinkonu sinni á ... takið eftir, dudurudu á Þjóðhátíð í Eyjum, þetta byrjar snemma. Þær fara hinsvegar ekki alveg einar enda hefði það ekki verið tekið til greina ef sú staða hefði komið upp, það eru foreldrar með. Ég er búin að heyra í henni á hverjum degi, hún fór á miðvikudag og kemur næsta miðvikudag, allt gott að frétta af henni og bara gaman gaman. Eyfi er að koma svo til landsins í dag og er þá alkominn, fluttur aftur til Íslands - velkominn Eyfi, hlakka til að sjá þig. Ég sit svo hér heima og reyni að læra sem gengur nú alveg þokkalega, þó engin rosalegur hraði í þessu hjá mér en þetta mjakast. Fer í fyrsta prófið 15. ágúst. Eyþór neyddist til að vinna í dag þar sem skortur er á starfsmönnum í dag, hann ætlaði að reyna að vera í fríi enda margt að gera hér á heimilinu þar sem ákveðið var að halda hér grillveislu nk. laugardag fyrir næstum 50 manns, OMG! Það er samt fín ástæða til að drífa ýmis verk áfram sem löngu átti að vera búið að framkvæma enda framtaksemin á þessu heimili mjög mikil ;)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli