miðvikudagur, nóvember 03, 2004

Hitt og þetta

Það er allt fínt að frétta af okkur, dagarnir gjörsamlega fljúga frá manni. Eyþór flaug til Tálknafjarðar um helgina til að spila, það gekk ágætlega nema það vantaði allt fólkið á staðinn. Mér skildist að það hefði verið árshátíð helgina áður þannig fólk var kannski enn að jafna sig eftir hana svo voru heldur ekki komin mánaðarmót þannig að enginn hefur átt pening til að fara á djammið. Það er hinsvegar alltaf sama sagan með mig, læra, læra, læra - það er samt svo erfitt að sitja bara og lesa enda er ég iðulega að finna mér eitthvað annað að gera eins og að setja í þvottavélina og þess háttar, kannast ekki einhver við þetta!!!
Stelpurnar fór í skólann á mánudaginn eftir 6 vikna verkfall sem væntanlega heldur áfram nk. þriðjudag þ.e. ef kennararnir fella samninginn sem flestir búast við. Þetta er ömurlegt ástand, vona að það leysist nú samt fljótlega og það verði gerðir samningar en ekki verði sett lög á kennarana, ekki er það nú betra. Stelpurnar eru mjög ánægðar í skólanum núna og ég er ekki frá því að það sé aðeins léttara yfir þeim núna enda ekki gaman að hanga heima í 6 vikur.
Það byrjaði að gjósa í Grímsvötnum á mánudagskvöldið 1. nóv. hægt að fylgjast með því á mogganum.

Engin ummæli: