laugardagur, september 17, 2005

Arrgh

Stundum finnst mér tæknin ekki skemmtileg. Ég var búin að skrifa einhverja romsu af sjálfsvorkun um mig því ég lá í bælinu í gær og hinn að drepast í höfðinu og með ógleði en þegar ég ætla að kíkja á bloggið til að sjá hvort það hafi ekki skilað sér....Nei bara fyrirsögnin þannig ég eyddi henni bara. Óþolandi. Ég hef ekki tíma til að bulla mikið meira því ég þarf að fara að taka mig til, er nefnilega að fara í brúðkaup kl. 18 hjá Einari og Ingu.


Innilega til hamingju með afmælið í gær Óli. Sá það að á síðunni hans Eyfa.

Engin ummæli: