Sagði ég ekki!! Gott veður og ég verð að hanga inni og læra, týpiskt. Ég vona að þeir sem þurfa ekki að hanga yfir bókunum fari nú og njóti sólarinnar, ég myndi a.m.k. gera það ef ég mætti ;)
Annars er fínt að frétta, ég er búin í prófinu á þriðjudaginn og þá get ég farið að gera allt það sem mig langar að gera núna. Ási er orðinn hress og hættur með nefrennsli og pirring. Hann fékk banana áðan og það gekk mun betur heldur en í fyrsta skiptið en þá hryllti hann sig alveg heil ósköp, fannst þetta bara vont en núna var þetta allt í lagi :D
Hlakka til að fylgjast með Eurovision á fimmtudaginn, vona bara að við komumst áfram, það er ólíkt skemmtilegra að horfa á aðalkeppnina þegar við erum með.
.... en nú verð ég að hætta.
ps. þið megið alveg endilega kvitta í gestabókina eða kommenta, mig langar svo að vita hvort einhver er að lesa bloggið mitt ;)
Bæ í bili
kv. Inga María
sunnudagur, maí 06, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

5 ummæli:
já já já það er sko verið að lesa bloggið þitt, eins gott að kommenta svo að þú fyllist eldmóði og skrifir ennþá meira ;0)
Og hvernig gekk í prófinu?
Oh það er svo gaman að fá komment. Maður er eins og lítill krakki að fá pakka ;) (smá athyglisþörf - hihi).
Ég fer í prófið á morgun, vonandi gengur það vel just hope so.
auðvitað les ég bloggið þitt, les reglulega hjá öllum sem ég þekki sem eru að blogga og ég skal vera duglegri að kommenta.
Jæja, hvað er nú að frétta af prófunum? Ertu kannski komin í frí?
Skrifa ummæli