Hvítasunnuhelgin liðin og við búin að fara í okkar fyrstu útilegu á árinu. Við fengum lánað fellihýsi sem er algjör lúxus, tala nú ekki um að vera með hita yfir nóttina eða þurfa ekki að vakna með rassinn klesstan við jörðina vegna þess að loftið er farið úr vindsænginni - yndislegt. Við fórum með Óskabörnunum í Þykkvabæ og fengum bara fínt veður a.m.k. yfir daginn en það var heldur kalt yfir nóttina. Ási var hinn þægasti og sofnaði eins og heima hjá sér um kl. 9 og svaf til að verða 7. Hann hafði rosalega gaman af því að sitja í grasinu og slíta það upp. Hann sat nú reyndar ekkert lengi kyrr þar sem hann er farinn að skríða og finnst mjög gaman að kanna heiminn þessa dagana.
Ég held að það sé málið að fá sér fellihýsi þegar við ákveðum að fara í að túrast um Ísland sem verður kannski eftir svona 2 ár, allaveganna verður það ekki þetta sumarið þar sem við ætlum að taka garðinn í gegn og gera hann fínan.
Eins og ég nefndi hér áðan þá er litli kúturinn farinn að skríða og í gær þá komst hann í matardallinn hann Skugga og vatnsdallinn og fannst ekkert lítið gaman hihi. Svo er hann farinn að kanna íbúðina og skríður út um allt - ferlega gaman að fylgjast með honum núna, eina stundina er hann hjá manni svo þá næstu er hann kominn í hinn endan á íbúðinni.
Ég hef enn ekkert fengið að vita úr prófinu þannig ég bara bíð ennþá. Ég er pínu nervus er engan vegin örugg um að ná þessu en vona samt það besta. Ég er alltaf að reyna að byrja undirbúningnum fyrir ritgerðina en gengur eitthvað ósköp hægt - ætlaði að vera rosa duglega meðan stelpurnar væri enn í skólanum en það hefur ekki alveg gengið eftir. Þær klára í næstu viku og eru þá komnar í sumarfrí. Perla er núna í prófum sem klárast á morgun og Ólöf var alla síðustu viku í prófum. Skólaslit hjá þeim eru svo á fimmtudaginn.
þriðjudagur, maí 29, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli