föstudagur, desember 10, 2004

Jæja nú er ég hálfnuð með prófin, 2 búin og 2 eftir. Mér gekk ágætlega í prófinu í gær en hörmulega í fyrsta prófinu. Nú er ég að reyna að lesa fyrir þjóðhagfræðiprófið sem er næsta próf. Mér finnst það alveg merkilegt hvað maður verður syfjaður þegar maður er að lesa fyrir próf en ekki þegar maður er að lesa einhverja aðra bók, skrítið. Ég er t.d. alveg að drepast úr syfju núna og klukkan er bara 4, ótrúlegt. Ég ætla að reyna að vera dugleg í svona hálftíma í viðbót en þá byrjar föstudagsskutlið, keyra og sækja Ólöfu og Perlu í fimleika en annars er Perla orðin svo duglega að labba þetta sjálf, ég sæki hana þó oftast því hún er ekki búin fyrr en að verða 8 og þá förum við yfirleitt til mömmu að horfa á Idol stjörnuleit, geggjað stuð :)

Engin ummæli: