laugardagur, desember 04, 2004

Nú er próftímabilið að hefjast, fyrsta prófið á mánudaginn. Ég veit ekki hvernig mér á eftir að ganga í því enda erfiðasta prófið að mínu mati og mér finnst ég ekki kunna nóg í þessu til að ná prófinu en ég má þó ekki gefast upp FYRIR prófið, ég reyni og geri mitt besta ef það er ekki nóg þá verður bara að hafa það og þá verður bara tilraun tvö næsta haust.
Ég hlakka rosalega mikið til að komast í jólafrí og ætla líka að njóta þess þó svo að við reynum að nota tímann til að pakka dótinu okkar fyrir flutningana. Ég tek síðasta prófið 18. des. jibbí. Verð að halda áfram að læra eða eitthvað..... Bæ í bili.

Engin ummæli: