Hér er allt í fullum gír. Útgáfutónleikar hjá Eyþóri í kvöld á Hressó kl. 22. Ég ætla að skella mér og draga saumaklúbbinn minn með - held samt að þær komi nú alveg sjálfviljugar, hihi. Hlakka til að heyra í þeim :)
Nú er komið að próflestri hjá mér en ég fer í próf 8. maí þannig ef ég held vel á spöðunum og Ási litli verður stilltur þá ætti þetta að hafast - bara verður. Svo er þetta nú alveg að verða búið hjá mér. Ætla að gera ritgerðina í sumar, byrja strax eftir prófið svo ég þurfi nú ekki að eyða öllu sumrinu í hana og svo er eitt haustpróf í ágúst. Ef þetta gengur eftir að þá mun ég útskrifast í október jibbíí, get varla beðið.
Ásbjörn Freyr er rosalega duglegur þessa dagana að flakka um stofuna enda farinn að velta sér út um allt. Ekki verður langt að bíða þar til drengurinn fer að skríða en hann fór upp á hnén fyrir 2 dögum síðan og ruggaði sér aðeins, bara spurning um að vera duglegur að æfa sig ;) Hann er svo farinn að fatta göngugrindina, er aðeins farinn að mjaka sér áfram í henni enda margt að skoða og koma við ;) Var að setja nýjar myndir inn á barnlandssíðuna hans.
Það var mynd af Perlu í mánudagsmogganum sl. (23.04.2007). Barnavinafélagið Sumargjöf var að veita styrki og fékk Skólakór Kársnesskóla styrk til útgáfu geisladisks undir stjórn Þórunnar Björnsdóttur eða Tótu eins og svo margir þekkja hana undir og var Perla og bekkjarbróðir hennar beðin um að taka við styrknum ;)
fimmtudagur, apríl 26, 2007
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli