þriðjudagur, október 04, 2005

Klukk

Ég var klukkuð af Auði og átti semsagt að skrifa fimm staðreyndir um sjálfa mig.

Here it comes ......

1. Ég fór á tvenna tónleika í sumar, U2 og Duran Duran og er rosalega ánægð með að hafa drifið mig :)
2. Ég er algjör bruðlari, er algjör snillingur að eyða í ekki neitt!
3. Ég hlakka alltaf til húsmæðraorlofsins með saumó því ég elska að borða, drekka, slappa af í góðra vina hópi :)
4. Ég fékk hestadellu þegar ég var smápæja og hef hana ennþá. Ég á þó ekki hest en ætla að bæta úr því eftir nokkur ár því þá er stefnt á að kaupa hest :)
5. Ég er með algjöra kóngulóafóbíu, finnst þær ógeðslegar.

... en nú má ég klukka einhverja bloggara og ætla að klukka Eyfa og Viktoríu.

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ,
skráðu þetta einhversstaðar vel hjá þér: Ólöf Österby skrifar comments á bloggsíður! Þetta er mitt fjórða í kvöld - og síðasta.
Kveðja til ykkar allra,
Ólöf