fimmtudagur, október 13, 2005
Klár hundur?
Í gær þá setti ég Skugga út í band sem er svosem ekki frásögu færandi nema það að hann eins og oft áður reynir að opna hurðina. Ég hafði hinsvegar læst henni þannig hann komst ekki inn. Hinsvegar smátíma eftir tilraunirnar til að opna útihurðina þá var dinglað. Ég fer til dyra og enginn annar en Skuggi stendur fyrir utan!!!! Er hann orðin svona klár að geta dinglað þegar hurðin er læst eða ætli einhver hafi legið í hláturskasti bak runna yfir svipnum á mér, hihihi Ég var mjög hissa og gat ekki annað sagt en "varst þú að dingla Skuggi minn" "Komdu þá inn vinurinn"
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

1 ummæli:
Skrifa ummæli