Jæja það er bara kominn mars, mér finnst tíminn hafa liðið ótrúlega hratt, ég segi ekki annað. Við erum búin að koma okkur þokkalega fyrir en þó er margt eftir, enda búið að vera brjálað að gera bæði í skólanum hjá mér og í vinnunni hjá Eyþóri en þetta hefst allt á endanum.
Þessa vikuna er búið að vera óvenjulega mikið að gera í skólanum, bara að skila 5 verkefnum í vikunni. Vikan er hálfnuð og ég hlakka mikið til þegar þessi vika er búin.
Perla liggur núna lasin heima, þó ekki alvarlega, er með snert af flensu held ég og henni leiðist ekkert smá.
Ég ætla að reyna að setja inn myndir af húsinu okkar um helgina, allaveganna ekki fyrr. Ég þarf bara að finna snúruna fyrir myndavélina, er alltaf á leiðinni - vona að það verði af því núna c")
miðvikudagur, mars 02, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

Engin ummæli:
Skrifa ummæli