laugardagur, mars 26, 2005

Gleðilega páska

Hæ hæ.
Allt fínt að frétta. Á morgun er páskadagur og allir bíða spenntir eftir að fá páskaeggin sín. Venjan á okkar heimili er að fela páskaeggin og búa til einhverja vísbendingu. Þetta finnst stelpunum okkar alveg rosalega skemmtilegt.

Ég get varla sagt að ég sé í páskafríi, ekki nema þrjú verkefni sem ég er að streða við. Ég á mjög bágt með að halda einbeitingunni að þeim en ég verð víst það þarf að skila þessu á nk. miðvikudag og fimmtudag. Ég er alveg stórhneyksluð á að það skuli vera að setja skiladag á verkefni strax eftir páska það þýðir bara eitt - ekkert páskafrí. Ég er allaveganna ekki að njóta þess að vera í "fríi". Ég vona hinsvegar að aðrir njóti þess og ég get bara hlakkað til þess þegar ég verð búin með skólann þá ætla ég sko að njóta þess :)

Stelpurnar eru komnar með heimasíða á www.folk.is, sjá slóð hér til hliðar. Endilega kíkið og skrifið í gestabókina þeirra þær verða ekkert lítið ánægðar með það.

Í gær kom Bjögvin með sína fjölskyldu og við borðuðum saman ásamt Arnari og hans fjölskyldu og áttum góða stund saman. Mér fannst rosalega gaman að hitta þau og krakkana, litli guttinn var ekkert smá krútt. Í kvöld förum við til mömmu í mat og á morgun er stefnan sett í Selvoginn.

Við óskum ykkur öllum gleðilegra páska.

Við reynum að vera duglegri að skrifa en það er eins og það er mikið að gera og svosem ekkert nýtt að frétta en alltaf gott að láta heyra eitthvað frá sér.

Engin ummæli: