þriðjudagur, janúar 25, 2005

Allt fínt að frétta, bara mikið að gera c",)

Jæja nú fer að styttast í flutninga. Við stefnum á að flytja á laugardaginn ef allt gengur upp, annars verður það þá bara á sunnudaginn. "Við" (aðallega Eyþór) erum búin að brjóta niður einn vegg, búa til gat fyrir hurð og rífa niður timburvegg. Nú er hann og Auðunn að setja upp timburvegginn þannig að Ólöf fái herbergi. Herbergin eru nánast til, búið að mála og parketleggja - vantar reyndar að setja listana en við fáum þá líklega á föstudaginn.

Perla er í prófum þessa dagana og gengur svona ljómandi vel, hún var að fá úr enskuprófinu og hún fékk 9,6 - ekkert smá stolt mamma :) Ég hinsvegar gafst upp á hagfræðinni og skipti yfir á viðskiptafræði með áherslu á fjármál, mér líður strax betur. Meirihlutinn af þeim grunnfögum sem ég var í eru þau sömu í báðum skorunum þannig að ég er ekkert svo langt á eftir. Ef vel gengur og ég verð í fullu námi þá tek ég þetta á 3 1/2 ári þannig að það munar nú ekki svo miklu.

1 ummæli:

Audur sagði...

Já það skiptir öllu máli að vera ánægð í sínu námi, þó maður þurfi kannski að skipta eða breyta um áherslur á leiðinni. Gott hjá þér.
kv.
Auður