mánudagur, janúar 10, 2005

Kærar þakkir fyrir góðar kveðjur allir saman.

Nú styttist í flutninga, við fengum bílskúrinn á laugardaginn og allt stefnir í það að við fáum íbúðina afhenta í þessari viku, gaman gaman. Þannig að hugsanlega flytjum við ekki næstu helgi heldur þar næstu, sjáum hvernig gengur með breytingar og slíkt.
Ólöf María veiktist á laugardaginn og er enn veik en í dag er hún miklu hressari heldur en í gær. Var með yfir 39°C hita í gær en 36°C hita í dag, skrítið hvernig hitinn rokkar upp og niður, vona að hitinn rjúki ekki upp aftur. Í gær lá hún bara í móki en í dag situr hún við tölvuna og er hin hressasta. Hún verður samt heima einn dag í viðbót og svo sjáum við til ef allt er í góðu en best að vera ekki með neinn æsing að senda hana í skólann þessi flensa er svo fjári lúmsk.
Nú fer jólafríinu mínu senn að ljúka og byrja í skólanum aftur á morgun, oohh þarf því að koma mér snemma á lappir. Ég er svo mikill letipúki að ég gæti alveg hugsað mér nokkra daga í viðbót í fríi.

Engin ummæli: