miðvikudagur, október 24, 2007

Útskrift

Jæja þá er loksins komið að því. Mér tókst að klára námið og útskrifast á laugardaginn nk. Svei mér þá ef mér hlakkar bara ekki smá til. Er búin að versla dragt, fara í klippingu, láta framkalla andlitið -hihihi þ.e. fyrir þá sem ekki vita þá er það litun og plokkun og svo á að gera neglurnar fínar á morgun. Held semsagt að ég sé bara alveg að verða tilbúin fyrir útskriftina.

Ég á að vera mætt í síðastalagi kl. 12 upp í Háskólabíó og svo mæta ættingjarnir "2" sem mega koma fyrir kl. 13, athöfnin byrjar svo kl. 13. Ég ætla nú samt að leyfa 3-4 að koma, þ.e. er Eyþór og stelpurnar og svo ætlar Jónki bróðir að koma og taka myndir. Get ekki hugsað mér að skilja aðrahvora stelpuna eftir heima. Mér finnst þær nú búnar að standa þvílíkt við bakið á mér að mér finnst þær hafi nú báðar rétt á því að koma. Nú ef það verður eitthvað vesen að þá situr Ólöf bara hjá pabba sínum. Jónki ætlar nú bara að standa og taka myndir.

Svo er planað að hafa smá gleði um kvöldið, þó ekkert mega partý, frekar svona party light :-)
Hlakka semsagt til að ljúka þessu námi og taka á móti prófskírteininu og fagna svo með vinum og vandamönnum um kvöldið.

Engin ummæli: