Við erum hér enn.
Bloggletin er alveg að fara með mig, þið verðið bara að þola það, þetta kemur stundum fyrir :)
Ég setti inn nýjar myndir í albúmið af drengnum um daginn
Bloggletin er alveg að fara með mig, þið verðið bara að þola það, þetta kemur stundum fyrir :)
Ég setti inn nýjar myndir í albúmið af drengnum um daginn
.

Ég er að reyna að læra þessa stundina en gengur eitthvað erfiðlega, stelpurnar eru að taka til inni í herbergjunum hjá sér, Eyþór eitthvað að dúllast úti í bílskúr og Ási litli sefur enn í vagninum sínum. Hann er búinn að sofa síðan rúmlega eitt þannig þetta er góður lúr hjá drengnum þannig ég verð að reyna að nýta tímann í eitthvað gagnlegt á meðan (eins og að blogga smá, hihihi).
Það nýjasta er að frétta af Perlu er að hún fékk sér tvo sæta kanínuunga eftir mikið tuð í foreldrum sínum. Pabbi hennar gaf leyfi ef hún gæti fengið þá frítt og daman er því búin að liggja inn á dýraspjallinu og redda sér fríum kanínuungum. En þeir eru nú voða sætir og þeir eru bræður.
Ási dafnar aldeilis vel, hann er aðeins farinn að smakka graut en ekki mikið. Ég skellti honum á tölvuvigt um daginn og þó svo að sú vigtun hafi kannski ekki verið alveg akkúrat, þar sem hann getur ekki alveg setið óstuddur ennþá, en þá mældist drengurinn 8,7 kg. NB! hann var 7,4 kg í 3ja mánaða skoðununni. Held að hann sé að sprengja vaxtakúrfuna sína. Ég er a.m.k. mjög spennt að sjá hvað hann er orðinn í 5 mánaða skoðuninni sem er 16. mars ef ég man rétt.
Eitt enn....
Til hamingju með 7 ára afmælið Álfheiður í dag.





1 ummæli:
gaman að sjá þig blogga aftur
Skrifa ummæli