mánudagur, maí 01, 2006

Góð helgi

Mikið um heimsóknir þessa helgina, mjög gaman. Okkur var boðið til Kristínar og Nonna á föstudagskvöldið, smá Österby samkoma til heiðurs Atla og fjölskyldu á laugardeginum og svo opið hús hjá Andrési vini Eyþórs í tilefni afmæli hans og bróðurs á sunnudeginum. Segi bara kærar þakkir fyrir mig og mína. Gaman að hitta ykkur öll.

Nú verð ég hinsvegar að einbeita mér að próflestri því það eru fjögur próf framundan á tæpri viku. Hlakka mikið til þegar þessi hryllingur er búinn.

Ég setti inn nýjar hvolpamyndir um daginn fyrir þá sem vilja skoða en ég hef ekki ennþá fundið út hvernig á að setja inn myndbönd - tekst ekki. Það virðist samt ekkert mál að setja inn myndbönd sem maður finnur á netinu en tekst ekki þegar ég ætla að tengja það beint úr tölvunni minni. Þetta eru svo stórir fælar að ég efast um það sé hægt að senda þau í tölvupósti (þónokkur MB)- en ef þið viljið að ég reyni að senda ykkur þá sendið mér tölvupóst. Hinsvegar ef einhver veit aðferð til að setja inn myndbönd þá endilega speak up. Ég ætla að skoða málið betur eftir próf, má ekki eyða tímanum í að finna út úr því núna - ég á mjög auðvelt með að gleyma mér í einhverju svona dútli sem gengur ekki alveg upp þegar maður á að vera að lesa fyrir próf....


Eyþór og Perla fóru í hópkeyrslu Sniglanna í tilefni 1. maí og eru ennþá, eflaust mjög gaman hjá þeim enda búið að vera fínt verður en ég heyri þó að það er að byrja að rigna, æ,æ - vona að þeim verði ekki kalt. En svona er Ísland í dag ..... allra veðra von ;)
.......

Biða að heilsa ykkur í bili, verð að halda áfram að læra.

1 ummæli:

Seldeg sagði...

Það er víst hægt að setja myndbönd á google video. Skoðaðu það.