sunnudagur, maí 01, 2005

Fjölskyldan stækkar

Það er heldur betur verið að stækka fjölskylduna :)
Í síðustu viku komu til okkar tveir sætir hamstrar og á föstudaginn þá flutti til okkar lítill svartur ferfætlingur sem segir voff, voff .......... við erum semsagt búin að fá okkur hvolp, labrador. Hann er algjör dúlla, set inn myndir síðar. Hann er að verða 7 vikna næsta þriðjudag þannig þetta er eins og að vera með ungabarn, vakna á nóttunni og sinna krílinu en það er í góðu lagi :)

Við höfum alltaf ætlað að fá okkur hund. Við fórum á föstudaginn og skoðuðum krílið og það var ekki aftur snúið, hann kom með okkur heim. Hann er kallaður Kolur þar sem hann er kolsvartur og það var það fyrsta sem okkur datt í hug, reyndum þó að finna eitthvert annað nafn en Kolur stóð alltaf upp úr. Látum heyra frá okkur meira síðar hvernig gengur.

Engin ummæli: