Í gær var síðasti kennsludagurinn í skólanum hjá mér þannig ég er komin í upplestrarfrí. Í tilefni þess á að fá sér aðeins í glas í kvöld. Okkur er boðið í matarboð hjá Lýð og Hjördísi í kvöld og þar verða allir veiðifélagar Eyþórs ásamt mökum. Ég hlakka mikið til enda hef ég ekki hitt mannskapinn í mjög langan tíma. Mikið stuð og mikið gaman í kvöld :)
Það helsta sem stendur upp úr í vikunni er að við fengum afsalið af Holtagerði og það er búið að koma nýja baðkarinu fyrir og tengja þannig að nú verður hægt að fara að þrífa sig, kominn tími til enda lekur af okkur skíturinn....... nei djók, við erum búin að vera dugleg að skella okkur í sund þannig þetta er ekki alveg svo slæmt.
Á eftir er Perla að keppa í innanfélagsmóti í Gerplu og ætlum ég og Ólöf að fara á eftir að fylgjast með henni. Eyþór er víst að vinna í allan dag þannig hann missir af því.
laugardagur, apríl 16, 2005
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)

2 ummæli:
Hæ skvís
Takk fyrir síðast! Þetta var þrusu gaman.
Kveðja, Hjördís
Ég skemmti mér rosalega vel og takk kærlega fyrir mig. Meiriháttar matur, meðlæti og frábær félagsskapur :)
Kv. Inga
Skrifa ummæli